Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Síða 66

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Síða 66
388 Fálkinn. IÐUNN Artus konungur var aftur heim kominn; hann heimti aftur sverð sitt, Excalibur, upp úr Bretlandshafi, blátt sem hinn kalda næturhimin; riddararnir hans tólf lyftu þungum höfðum frá steinborðinu og hristu af sér svefn- inn, jörðin söng undir fótataki þeirra. Gareth var þar líka, konungssonurinn, sem klæddist gervi eldasveinsins og sneri hæðnishlátrum Lynettu í ást til sín. Renaud var þar Iíka, hann var aðalborinn og hesturinn danzaði undir honum, og fálkinn, sem svaf nú og drúpti höfði, sat hátt á hendi hans og horfði framan í hann með augum ljómandi af gleði og hinni gullnu sól hetju- sagnanna. En skýin liðu fram hjá, eins og örlög mannanna, skuggabjörg þeirra hrúguðust hvert upp yfir annað, unz þau mynduðu hvelfingu, og inn um glufurnar féllu sólar- geislarnir bleikir og hvassir sem spjót, og fálkann dreymdi myrka drauma í máttvana reiði og vaknaði með veini. Ekki leið á löngu, fyrr en drengir, sem voru á reiki um þessar slóðir, sáu fugl herra Enguerrand sitja á hendi Renauds. Sveinar riddarans gripu hann og fóru með hann til hallarinnar, og það fór um hann nístandi kuldi, þegar fálkinn var tekinn af honum, rólegur og mikillátur, eins og hann var vanur, án þess, að hann sveigði einu sinni hálsinn eða rendi köldu, rólegu aug- unum til hans. Fálkinn var færður eiganda sínum, en hann sýndi eftirlætisfuglinum, sem týndur hafði verið, enga blíðu, því að hann hafði látið ótignar hendur snerta sig. Herra Enguerrand leit þögull niður á Renaud, og það smárifjaðist upp fyrir honum endurminning um gömul veiðilög frá þeim tíma, er stálvarinn fótur aðals- mannsins hvíldi á hálsi alþýðunnar, og nautnirnar flögruðu friðhelgar um axlir hans — og brúnir hans drógust
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Iðunn : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.