Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Page 76

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Page 76
398 Þrjár bækur. IÐUNN alþýðu, ber ægilegan volt um andlega niðurlægingu og vesaldóm vinnandi stéttar á Islandi. Það er grátbroslegt að sjá, hvernig íslenzk alþýða, sem öldum saman lét höfðingja sína siga sér til þess að hengja smáþjófa og hálshöggva og drekkja alþýðufólki, sem ekki kunni að leggja eðli sitt í ónáttúrlega fjötra, hefur þessa yfirstétt- arkonu til skýjanna fyrir sömu sakir, dáist að léttúð hennar og kemst við af raunum hennar. Og þegar jafn merkur höfundur og Guðmundur Kamban tekur sér fyrir hendur að rita bók um Jómfrú Ragnheiði, er hann að gefa íslenzkri alþýðu kost á því að halda þessum skrípaleik áfram. Eg efast um, að hann geri sér það ljóst sjálfur. Ef til vill veit hann ekki, að af þeirri hlýju, sem hann kann að geta áskapað Ragnheiði í hugum lesenda sinna, er hann að byggja múrvegg af samúð alþýðu um afglöp og syndir og léttúð yfirstéttar- innar. Þess vegna mun bók hans verða tekið vel af hinum útvöldu í þjóðfélaginu og þykja mikið verk og merkilegt. Ungar alþýðustúlkur, sem ekki eiga annað en miskunn hreppsins upp á að hlaupa, ef þeim skyldi verða eitthvað á, eiga fyrst og fremst að kaupa »Jómfrú Ragnheiði« og því næst að dást að dirfzku og glæsileik og ásthita Jómfrú Ragnheiðar. Það væri vit í að ætlast til slíks, ef öllum börnum, án undantekningar, væri séð fyrir sæmilegu uppeldi, eða komin væri viðunandi lög- gjöf um mæðrastyrki. En eins og nú standa sakir er það óþarft verk. Enginn skyldi taka orð mín svo, að ég telji, að segja beri rithöfundi fyrir verkum um það, hvað hann skuli skrifa. En bók eins og þessi hefur þegar tekið út sín laun. Alþýða Islands leggur hana ekki í sjóð þeirra verðmæta, sem hún hefur með sér inn í framtíðina. Höfundi, sem margt gott hefur skrifað, verður fyrirgefið að hafa ritað hana, hvenær sem hann vill leggja fram snilli sína og orku í þjónustu stórra viðfangsefna. Guð- mundur Kamban hefur sýnt, að hann getur það — og getur fórnað einhverju fyrir það. Hann hefur líka sýnt þá drenglund og trygð við bókmentalegar hugsjónir sínar, að honum er vel trúandi til þess. Ég man þegar að

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.