Kirkjuritið - 01.01.1947, Blaðsíða 62
56
Jóhann Hannesson:
Jan.-Marz.
Með því að ég' hallast sjálfnr að annari skoðnn en
vinur minn, dr. Reichelt, livað kristniboðsstefnu snert-
ir, finnst mér sanngjarnast að birta hér þýðingarmestu
atriðin í stefnuskrá félags hans, þar sem hann greini-
lega skilgreinir stefnu sína til hægri og vinstri, og geta
þá lesendur dæmt um þelta sjálfir.
Grundvallarskoðanir C.H.M.
1) Vér álitum, að Biblían sé hin einstæða opinberun
Guðs, reglan fyrir lífi og kenningu, liin fullkomna
og áreiðanlega leið til lijálpræðis og sælu fyrir
mannkynið.
2) Vér trúum á liinn þríeina Guð, Föður, Son og Heilag-
an Anda; á Föðurinn, sem hefir með orði sínu skap-
að heiminn, viðheldur honum og stjórnar; á Son-
inn, sem liefir friðþægt fyrir synd vora og endur-
levst oss með sínu heilaga lífi og sigurdauða sínum á
krossinum. Hann reis upp frá dauðum, oss til rétt-
lætingar, fór til himna og lifir þar, og biður fyrir
oss. Og vér trúum á Heilagan Anda, er kallar oss
og hefir áhrif á oss, endurfæðir og helgar oss, og
með því myndar og saman safnar hinni heilögu, al-
mennu kirkju á jörðu, eins og þetta er skýrt og fylli-
lega telcið fram í Fræðum Lúthers liinam minni.
3) í Idýðni gagnvart skipun Drottins vors Jesú Krists,
(Mattli. 28. 18—20 og Mark. 16. 15—16) höfum vér
hafið starf til þess að færa fagnaðarboðskapinn
mönnum, er fálma eftir sannleikanum, þrá hann og
leita hans, og eru meðal búddhatrúarmanna og tao-
trúarmanna og annara trúfélaga i Kína.
4) Vér viðurkennum, að meðal þessara trúhneigðu
manna sé mikið trúarlegt efni að finna, geislar frá
ljósi og sambönd, er andi Guðs með huldu og kyr-
látu móti hefir komið til leiðai’. Þetta efni er bæði
í lielgum ritum, í helgisiðum og hugmyndarkerfum
þeirra.