Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1951, Page 95

Kirkjuritið - 01.12.1951, Page 95
BRAUÐIN OG FISKARNIR 345 að metta marga svanga munna. Örbirgðin ógnaði ungu hjón- unum, ægileg örbirgð, sem skar að innstu hjartarótum. Börnin voru hraust og sterkbyggð. Jónas horfði á þau, hreykinn á svip. En María hugsaði um þau með ástríðukenndri ástúð, sem olli henni þjáningum og þreytu. Stundum sá hún fannhvít segl svífa yfir vatninu áleiðis til Tíberías, og henni varð hugsað til Leu systur sinnar. Aldrei hafði hún komið aftur, svo að allt hlaut að hafa orðið eins dásamlegt og hana dreymdi um, áður en hún fór. Jafnskjótt og Markús litli, elzti drengurinn komst á fót, tók Jónas hann með sér í bátinn. Og þegar hann var tólf ára, var honum leyft að fara til Kapernaum til að selja fisk. Kvöld nokkurt kom hann heim mjög æstur. „Ég gat naumast selt fiskinn", sagði hann. „Það var enginn heima, en allt í einu sá ég fjölda manns standa við húsið hans Símonar. Gatan var alveg troðfull af fólki. Ég reyndi að kom- ast í gegn, en enginn komst að dyrunum. En rétt í því sá ég fjóra menn, sem báru rúmflet á milli sín. Þeir fóru fram hjá, þar sem ég stóð, og ég sá veikan mann í fletinu. Hann virtist alveg máttlaus. Þeir reyndu að komast inn í húsið, en þegar það var ekki hægt, vegna fólksfjöldans, þá komust þeir upp þrep, alla leið upp á þak, losuðu nokkrar þakskífur og létu sjúklinginn síga niður í húsið. Þar kve vera einhver meistari, sem læknar. Og eftir skamma stund kom veiki maðurinn gang- andi, óstuddur, út á götuna. Meistarinn hafði læknað hann." „Farðu að borða kvöldmatinn þinn, Markús," sagði María þreytulega. Þetta hafði verið leiðinlegur dagur. Jónas var forvitnari. „Hvernig leit þessi meistari út?“ spurði hann. „Ég veit það ekki, ég sá hann ekki", sagði Markús litli. En ■'tlu seinna sagði hann þeim söguna um lækningu sonar hundr- aðshöfðingjans í Kapernaum. i>Ég verð að sjá þennan meistara", sagði hann. En það var allt annað og þýðingarmeira, sem María hafði uni að hugsa þetta kvöld. Hún hafði frétt frá Leu, sem var nú hamingjusöm og auðug. Hún var enn ógift og vann hjá sama vinnuveitanda sem hún byrjaði hjá.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.