Kirkjuritið - 01.04.1953, Blaðsíða 32

Kirkjuritið - 01.04.1953, Blaðsíða 32
98 KIRKJURITIÐ hönd í bagga með hugsunum mínum. Var þetta mér mikill skóli á marga grein og hjálpaði á ýmsan hátt við hinu sjúka sálarástandi mínu. Hann talaði um margt, sem til- heyrði daglegu lífi, en einkanlega um það, er snerti sterk- an og einbeittan vilja og trúna á hið góða. Hann sagði oft sem svo: Trú þú á Guð. Beittu vilja þínum af alefli fyrir því, sem þú veizt að er rétt og gott. Sterk og einlæg trú og sterkur vilji leiða þig í gegnum allar þrautir í lífinu. Og sannarlega þurfti ég oft á lífsleið minni á þessu að halda.------Á vetrarkvöldum, þegar allt fólkið var við tóvinnu í baðstofunni, kunni séra Guðmundur allt annað lag á því að skemmta fólki sínu. Gekk hann þá um gólf milli rokka og kembulára og skrafaði við fólkið. Gat hann þá á margan hátt gert að gamni sínu, sagt kímnisögur og borið upp gátur.“ Svona er bjart yfir minningunni um séra Guðmund í huga þessa gáfaða, en veiklynda ævintýramanns. Það myndu öll hjá þeirra Reykholtshjóna hafa sagt, að Tryggvi legði réttan dóm á þennan fyrirmyndar bæjarbrag. Ekki er síður vert að minnast þess, hve vel séra Guð- mundur greiddi veg hjúa sinna, þegar þau hugðu á hjú- skap og búskap. Stóð hann þar líka vel að vígi, þar sem hann hafði ábúð kirkjujarðanna í hendi sinni, en þær voru margar og sumar þeirra í nágrenni við Reykholt. Ingólfur smiður fastnaði sér Höllu Pálsdóttur, sem áður er nefnd. Þeim byggði hann góðjörðina Breiðabólstað, Þar sem þau bjuggu fyrirmyndarbúi til elli. Sigurbirni Björns- syni, verkstjóra sínum, byggði hann Hrísa í Flókadal; kona hans var Hallbera, sem getið er hér að framan. Helga Þorbergssyni, verkstjóra sínum, byggði hann Hægindi- Þessir þrír bændur komu allir að Reykholti úr Árnessýsln og voru á líku aldursskeiði. Öllum búnaðist þeim eftir þvú sem efni stóðu til, og allir nutu þeir hlunnindanna að fa bújarðir sínar keyptar með gjafverði. En mest um vert þótti öllu þessu fólki að fá bólfestu í nágrenni við Reyk- holt, því að við prófastshjónin og börn þeirra hafði allt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.