Kirkjuritið - 01.04.1953, Side 49

Kirkjuritið - 01.04.1953, Side 49
STARF KIRKJUNNAR FYRIR SJUKA 115 því að safnaðartilfinningin væri mjög sterk meðal dönsku þjóð- arinnar. Fé það, sem safnaðarhjálpin hefir til umráða, er mestmegnis frjáls samskot. í hverri kirkju er gjafabaukur, og allt fé, sem 1 baukana kemur, rennur til líknarstarfsins. Eftir því, sem mér skildist, nýtur starf það, sem safnaða- hjálpin innir af höndum, eins mikillar hylli dönsku þjóðarinnar eins og starf Sambands íslenzkra berklasjúklinga nýtur hjá oss. Eins og gefur að skilja eru söfnuðirnir mjög misríkir. Rík- Ustu söfnuðirnir eru í miðborg Kaupmannahafnar, en þar er minnst þörf á líknarhjálp. Fátækustu söfnuðimir eru í úthverf- unum, og þar er hjálparþörfin brýnust. Þess vegna var sam- band safnaðanna stofnað, svo að þeir ríkari gætu hjálpað þeim fátækari. Samstarf safnaðahjálparinnar annast nú skiptingu fjárins. Það hefir einnig stofnsett margar líknarstofnanir, sem einum söfnuði hefði verið ofvaxið að stofna og starfrækja. Núverandi forstjóri fyrir ,,De samvirkende Menighedsplejer, Pastor Westergárd-Madsen, sagði mér, að safnaðahjálpin ann- nöist stofnanir á 28 stöðum í Kaupmannahöfn, auk þess að hafa á hendi heimilishjálp og heimilishjúkrun, sem enn væri aðalstarfið. — Til þess að geta innt af hendi svona umfangs- mikið starf fær safnaðahjálpin nú styrk bæði frá ríki og borg. Safnaðahjálpin hefir mæðraheimili, barnahæli, gamalmenna- hæli og öryrkjahæli. Hún hugsar nær eingöngu um það fólk, sem ekki fær neinn styrk eða aðstoð frá því opinbera. Eg kom á gamalmennahæli á vegum safnaðahjálparinnar. Vistmenn þar voru fólk, sem að mestu leyti gat greitt meðlag sitt sjálft, og þurfti ekki styrk frá því opinbera. Hið opinbera hefir reist sín stóru hæli fyrir það fólk, sem það þarf að sjá Um. og þar er svo þröngt, að þetta fólk hefði ekki getað neina hælisvist fengið, ef safnaðahjálpin hugsaði ekki um það. Hrifnastur var ég þó af starfinu fyrir öryrkjana. Ég skoðaði tvö öryrkjahæli á vegum safnaðahjálparinnar. Á þessum hæl- Um er öryrkjunum kennd vinna við sitt hæfi. Ég horfði á konu ema, sem var að knippla. Hún var með svo bæklaðar hendur, að allir fingur á annarri hendi voru krepptir í lófa, þrír á hinni. 0 hefi ég ekki séð fegurri knipplinga en þá, sem hún vann. S sa líka unga stúlku, sem var svo fötluð, að hún gat ekki

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.