Kirkjuritið - 01.04.1953, Síða 52
118
KIRKJURITIÐ
Til þess að geta sýnt kvikmyndir og haldið þessa hljómleika
fær presturinn 3000 sænskar krónur á ári. Ég skoðaði plötu-
safn spítalans. Hann á orðið stórt safn af úrvals kristilegum
tónverkum.
Til skamms tíma var það siður í Svíþjóð, að sjúkrahúsa-
presturinn hefði umsjón með bókasöfnum spítalanna og væri
jafnframt bókavörður. En það var svo mikið starf, að prestur-
inn komst ekki yfir það. Var því tekinn upp nýr háttur. Hætt
var við að hafa sérstök spítalabókasöfn, en bæja- og borga-
bókasöfnin hafa deildir við spítalana, og þau leggja til bóka-
vörðinn. Presturinn hefir þó eftirlit með því, að alltaf sé til
gnægð kristilegra bóka í þessum deildum bókasafnanna, svo
að sjúklingar, sem lesa vilja kristilegar bækur, geti alltaf fengið
þá bók, sem þeir óska.
Ég hefi nú í stórum dráttum lýst því helzta, sem ég kynntist
ytra af starfi kirkjunnar fyrir sjúka.
Þá vaknar spurningin: „Hvað getur kirkja vor lært af starfi
nágrannakirknanna? “
Þessi meginatriði leyfi ég mér að nefna:
1) Hið fyrsta, sem ég tel að við verðum að gera, er að fara
að dæmi Svía, að fá stjómskipaða nefnd til þess að gera tillögur
um öll þessi mál hér hjá oss. Ríkisstjórn Svía skipaði konung-
lega nefnd, sem átti að athuga og gera tillögur um allt kirkju-
legt starf fyrir sjúka þar í landi, einkum þó starfið við sjúkra-
húsin, árið 1943.
Þessi nefnd gaf út mjög fróðlegt nefndarálit og skilaði til-
lögum sínum árið 1949, og er nú verið að vinna að því, að til-
lögur hennar komist í framkvæmd.
Vegna þess, hve þessum málum er stutt á veg komið hér a
landi, tel ég nauðsynlegt, að mál þessi séu ýtarlega rannsökuð,
og að tilvonandi nefnd leggi að starfi sínu loknu tillögur sínar
fyrir kirkjustjórn og Alþingi.
Þótt þessum málum sé skammt komið hér á landi, ber Þ°
að þakka það, sem gert hefir verið. Prestslega starfið við holds-
veikraspítalann, geðveikraspítalann og Landsspítalann og fleira,
t. d. prestslega starfið við Elliheimilið Grund í Reykjavík.
Áður en nefnd þessi hefir lokið störfum má koma þessurn
umbótum á:
2) Það þarf að gefa hjúkrunarkvennanemum kost á að kynn-