Kirkjuritið - 01.04.1953, Qupperneq 79
ERLENDAR FRÉTTIR
145
að heill hennar og stjórna málum hennar á grundvelli sannleika
og réttlætis. Það var hátíðlegt augnablik, þegar forsetinn hafði
lokið bæn sinni. Slíka stund höfðu menn aldrei lifað í þinghúsi
Bandaríkjanna, Capitol.
Það er merkilegt, að þessi þáttur í embættistöku forsetans
skyldi ekki vekja meiri athygli meðal blaðamanna á Norður-
löndum en verið hefir, og hvergi hefir sézt frá þessu sagt í
íslenzkum blöðum.
^uschida flugforingi tekur kristna trú.
Fuschida flugforingi, sá er stjórnaði árásinni á Pearl Harbour
1941, hefir tekið kristna trú og stundar nú guðfræðinám í
Éandaríkjunum og hyggst gerast kristniboði í heimalandi sínu
að námi loknu. Ætlar hann að nota helikopterflugvél við kristni-
öoðsstarfið og hefir kynnt sér meðferð þeirra í Bandaríkjunum.
Fyrir stríðið var hann mjög ákafur þjóðemissinni og leit á
arásina á Pearl Harbour sem þjónustu við föðurland sitt. Það
Var bandarískur kristniboði, sem sneri honum til kristinnar
tniar.
Frank Buchman fer til Austurlanda.
Siðferðistefna sú, sem kennd er við Frank Buchman og kölluð
hefir verið M.R.A. (Moral rearmament), vekur hvarvetna meiri
°g meiri athygli. Nýlega var Buchman boðið til Austurlanda
með hóp áhugamanna, til þess að kynna þar hreyfingu sína.
Hafa þeir hvarvetna hlotið hinar beztu viðtökur, bæði af stjóm-
malamönnum og öðrum forystumönnum þjóðfélaga þar eystra.
Margar af þjóðum Austurlanda eru að vakna til sjálfstæðis
°g meðvitundar um styrkleika sinn, því meiri nauðsyn er, að
siðferðileg áhrif eflist meðal þessara þjóða og þær kynnist því
bezta í vestrænni menningu.
Sjötíu forn handrit nýfundin.
Sú fregn barst frá Jerúsalem 1. apríl síðast liðinn, að fundin
væru í helli við Dauðahaf um 70 Biblíuhandrit um eða yfir
2000 ára gömul. Arabar fundu, fjárhirðar, og fengu í hendur
G. Lankester Harding fomritafræðingi. Og hefir hann látið svo
u,m mælt, að þetta sé ef til vill merkasti fornleifafundur vorra
tima.
Af roðlum þessum eru 38 handrit af 19 bókum Gamla testa-
mentisins. Hinir eru skýringar á Biblíuritum, sumar þegar