Kirkjuritið - 01.06.1967, Blaðsíða 36
274
KIRKJUIUTIÐ
Kirkjan veit, að hún liefur skyldum að gegna gagnvart börn-
unura. Henni ber að uppfræða bin skírðu börn í sannindunt
trúarinnar. Þótt lieimilin geri sitt í þessum efnum, þá segu'
kirkjan ekki við börnin: Þið eruð enn of lítil til að koma •
Guðs bús.
Hin mikla fyrirmynd vor í starfinu fyrir börnin eru þessi orð
Krists: Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það
ekki, því að slíkra er guðsríki. Þessi orð gilda ekki aðeins uin
börnin, sem í öndverðu komu til frelsarans, lieldur um öll börn
á öllum tímum. Til þess að framfylgja þessu boðorði á vorui»
dögum eru m. a. sunnudagaskólarnir, sem taka á móti börnum
frá fjögurra ára aldri. Sunnudagaskólinn ætti að vera fyrsta
starf safnaðarins fyrir yngstu börnin. Á aldrinum 4 til 10 ára
liafa börnin yndi af sögum, og margar af frásögum Biblíunnar
eru sérstaklega við barna liæfi. En verkefni sunnudagaskóla
er ekki aðeins að segja börnunum fallegar sögur, beldur byggja
brú frá beimili barnsins yfir í frásögur Biblíunnar. 1 ágætri
bók svissneska prestsins Emanuels Jungs um barnastarf kirkj-
unnar segir bann m. a. um hlutverk sunnudagaskóla: „Ver
verðuni að byggja á þeirri strönd, þar sem barnið er. Ver
verðum að reyna að ná til þess í liversdagslegu umliverfi þess,
og leiða það til þess staðar, þar sem Guð talar við það.“ E»
Iiversu góður, sem sunnudagaskólinn kann að vera í þessum
efnum, þá befur liann engin úrslitaálirif um trúarlega mótu»
barnsins, ef heimilið fylgist ekki með og styður starfið. Sú fyr"
irmynd, sem beimilin gefa börnunum um afstöðu til Krists er
miklu þýðingarmeiri en það, sem liægt er að kenna börnum a
sunnudagsmorgni. I sunnudagaskólanum eru börnin bvött li^
að biðja, en sé það ekki gert beima, er hætt við, að lítið verði
úr góðum áformum barnsins. í sunnudagaskólanum fá börni»
oft biblíumyndir, þar sem í livert sinn er vísað til ákveðinnai
frásögu Heilagrar Ritningar. Hversu mikilvægt væri það ekkn
að foreldrar tækju fram Biblíuna og læsu með börnunuin
texta sunnudagsins og reyndu að kenna þeim minnisversið. Ef
foreldrar fylgjast með því, sem gerist í sunnudagaskólanuin
og taka |iált í því, sem barnið kemst í snertingu við þar, þa
getur sunnudagaskólinn orðið til mikillar blessunar, ekki að"
eins fyrir börnin, lieldur allt beimilið.
Starf sunnudagaskóla er fyrst og fremst undir því koinið a‘^