Kirkjuritið - 01.04.1972, Side 44

Kirkjuritið - 01.04.1972, Side 44
til og fengu margir hverjir þá ásök- un af hálfu landsbúanna, að þeir vœru mótmœlendur. Consondine tel- ur, að 50—70 milljónir kaþólskra manna í Suður-Ameríku séu án prests- þjónustu. Sé tekið tillit til þeirrar fjölgunar íbúa, sem orðið hefur í Suður-Ameríku eftir að Consondine ritaði bók sína, mundi bók hans nú heita ,,Ka11 til 65 þúsunda". Annar kaþólskur klerkur ritaði fyrir 15 árum bók um ástand og horfur i þessum hluta heims. Hann taldi að aðeins 10% manna uppfyllti lág- marksskilyrði þau, sem gera þyrfti til þess að kallast sannur kaþólskur mað- ur. Hann benti á þá staðreynd, að fjöldi hefði snúið baki við kirkju og kristindómi í öllum þessum löndum. Það kom mörgum mönnum á óvart, þegar ríkisstjórnin í Chile lét rann- saka árið 1946, hvernig menn skipt- ust í trúflokka í landinu. Samkvœmt skýrslu þeirri kom í Ijós, að 70% þjóðarinnar töldu sig trúleysingja eða frelsishyggjumenn, 25% töldu sig kaþólska og 5% mótmœlendur. Samt sem áður teljum vér, samkvœmt frœðslu í öllum landafrœðibókum, að land þetta sé kristið land. í Brasilíu eru taldar 47 milljónir kaþólskra manna en 10 milljónir töldu sig spiri- tista. Kaþólska kirkjan hefur hafið talsverða sókn á þessu sviði og hefur sent marga duglega og unga menn til starfa í þessum löndum. Margir þessarar nýju prestakynslóðar hafa mikinn skilning á nauðsyn þess að bœta kjör verkalýðsins, eigi kirkjan að lifa áfram. Hins vegar hefur kirkj- an víða aflað sér andstöðu fjölda manna vegna þess, að hún ver hið raunverulega auðvald víða í lönd- unum á þann hátt, að óskiljanlegt er oss mörgum Evrópumönnum. III. Fyrir um það bil 70 árum voru svo til engir mótmœlendur í Suður-Ame' ríku. Síðastliðin ár hefur verið feikn- arlegur vöxtur í tölu þeirra. Nú mon1-1 þeir vera um 10—20 milljónir, og ma segja, að það allt hafi áunnizt a síðustu 40 árunum. Talið er, að á síð- ustu 30 árum hafi tala þeirra 12 til ^ faldast. Árið 1953 áttu mótmcelend- ur 19500 kirkjubyggingar í Suður- Ameríku, þeir áttu 48 prestaskóla a9 3655 prestar störfuðu í söfnuðum þeirra. Þá voru um 1500 nemar 1 prestaskólunum. Það er af mörgum talið eitt merkilegasta fyrirbrigði nu- tíma kristniboðssögunnar, sem gerzf hefur í Suður-Ameríku síðustu árin, og þá ekki sízt eftir síðustu heims- styrjöld. Margir rita um það, að su lífshreyfing sé einna líkust því, er hlýir vorvindar siðbótarinnar f°rU fyrst um Evrópu. Sœnskur prestur, sem ferðaðist um Suður-Ameriku á vegurn Lútherska heimssambandsins, segir frá því, að mótmœlendur séu ve þokkaðir, að víða sé nœgilegt a setja utan á kirkjuhúsið auglýsin9u eða skilti, sem á standi evangelis kirkja. Þá streymi svo mikill fjöl^' inn í salinn, að við liggi, að veggnn' ir spryngi utan af söfnuðinum. dj1' samkomur eru haldnar þar svo mennar, að líkist stœrstu manna mótum, sem um getur. Þar safnast ekki aðeins tugir þúsunda saman, 42

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.