Kirkjuritið - 01.04.1972, Blaðsíða 68
afhentar allar fasteignir á kristniboðs-
stöðvunum, en kristniboðsfélögin
greiða kristniboðunum laun og ferða-
kostnað, eins og áður. Sömuleiðis
veita þau kirkjunni fjárhagslegan
stuðning. Tilkostnaður minnkar ekki,
fremur mun hann aukast. Gjafir til
kristniboðsins arið 1971 voru kr.
3.314.678,35, allt lagt fram af fólki,
sem ann þessu starfi. — A.J.
AÐ NORÐAN
I minningu Björgvins Guðmundssonar
Ný kirkja í smiðum á Miklabœ —
Kirkjusókn á Sauðárkróki — Gagn-
kvœmar heimsóknir presta og kirkju-
kóra — Sönghátíð í Ljósvetningabúð
Einu sinni, þegar rœtt var um líf og
starf kirkjunnar, sagði gamall kirkju-
vörður: „Það er eins og alltaf þurfi
eitthvað að vera að gerast." — Nú
er það hverju orði sannara, að á
helgum degi er mikið ,,að gerast",
þegar messa er sungin og fagnaðar-
erindið boðað. Þó skyldi ég vel gamla
kirkjuvörðinn. Kirkjan á að nota tœki-
fœrin á hvern þann hátt, sem hugs-
ast getur til að boðskapurinn nái
fram að ganga, og nýir tímar þurfa
stöðugt endurnýjunar í starfi. Aðferðir
til boðunar þurfa að vera fjölbreyttar
að einu og sama markinu. Og sann-
lega er margt að gerast í kirkjunni
í þeirri meiningu, sem var í orðum
gamla kirkjuvarðarins, sé eftir því
leitað.
I minningu Björgvins
Á síðasta ári (26. apríl) hefði Björg-
vin Guðmundsson tónskáld orðið 80
ára, ef hann hefði lifað. Hann and-
66
aðist á Akureyri 4. janúar 1961-
Björgvin var, eins og kunnugt er, eitt
af okkar allra beztu tónskáldum °9
heyrast verk hans allt of sjaldan. —
S.l. sumar komu sunnankórar hinge®
norður undir forystu Jóns ísleifssonar
organista og formanns Kirkjukóra-
sambands íslands, og fluttu hér fagr'
an og mikinn konsert i minningu
Björgvins. Séra Birgir Snœbjörnsson
flutti minningarrœðu við það tceki-
fœri. Hafði söngskemmtun þessi áður
verið flutt víða á Suðurlandi.
Þann 9. janúar s.l. efndi Kirkjukór
Akureyrar til kirkjuhljómleika í Akur-
eyrarkirkju, sem eigi hefir áður verió
sagt frá. Flutti kirkjukórinn þar tón-
verk Björgvins; — helgi-kantötuna:
„TIL KOMI ÞITT RÍKI". Hljómleikar
þessir voru mjög vel sóttir, enda a
Björgvin hylli manna og vinsceldir
sökum hinna fögru tónsmíða, og '/c,r
það greinilegt þegar í upphafi hljóm-
leikanna, hve minning Björgvins tal'
aði sterku máli. Jakob Tryggvason<
organisti Akureyrarkirkju, lék þrjú Ió0
á pípuorgelið, áður en kórinn söng^
og voru það orgelverk eftir Björgvia-
Einsöngvarar á hljómleikunum voru
frú Gunnfríður Hreiðarsdóttir, ^
Lilja Hallgrímsdóttir, Jóhann Daníels'
son, Jóhann Konráðsson og Siguröur
Svanbergsson. Undirleikari var ensk'
píanóleikarinn og einleikarinn Philip
Jenkins, en söngstjóri var Jakoó
Tryggvason.
Það var allra manna orð, að hljóm'
leikarnir hefðu tekizt sérstaklega vel-
Yfir þeim var helgi og í gegnum allt
hinn sterki trúarandi, fegurð og sálar-
göfgi. Mýkt tónanna og samhljómUr
raddanna brást hvergi frá byrjun ti