Kirkjuritið - 01.04.1972, Blaðsíða 74
kljáð ! þeirri mynd, sem hann var.
í haust talaði svo Arthur Blessitt
á Trafalgar Square. Þar var saman
kominn fjöldi ungs fólks. Segir áheyr-
andi einn svo frá, að hann hafi
talað „hippa"-mál, notað söngva
með „hippa"-hljómfalli og ýmislegt
þótti þar nýstárlegt og furðulegt. En
krossinn, sönginn og málfarið notaði
hann til að draga athygli að því, sem
hann œtlaði að boða.
Þegar hann hóf að predika Krist,
talaði hann einfalt, skýrt mál um
hjálprœði Guðs og þýðingu þess að
viðurkenna Krist sem frelsara, per-
sónulegan frelsara. Hann bauð fólki
að koma og krjúpa við krossinn. Það
gerðu margir, einnig hippar. Eftir á
talaði hann við þá. Konan hans, frú
Blessitt, gekk einnig um meðal fólks-
ins, með yngsta barnið á bakinu, og
rœddi um Jesúm Krist. Að þessu búnu
tók Arthur Blessitt krossinn á bak sér
og hélt norður eftir með Biblíuna í
hendi sér.
TrúfrelsiS í Austur-Þýzkalandi
í Rostock í Austur-Þýzkalandi hafa
flestir foreldrar verið neyddir til að
láta börn sín hœtta að sœkja ferming-
arundirbúning. Þetta hefir komið nið-
ur á 90% barnanna, sem þessa til-
sögn sóttu. Börnin hafa ekki aðeins
orðið fyrir miklum erfiðleikum í skól-
unum, heldur hafa kennarar heimsótt
foreldrana oftsinnis og hótað þeim
því, að verði börn þeirra látin sœkja
trúfrœðslu muni þau ekki fá aðgang
að gagnfrœðaskólunum og þau
verða algjörlega hindruð frá námi í
œðri skólum. Hin evangeliska kirkju-
stjórn í Mecklenburg hefir mótmœlt
þessu kröftuglega og ritað hinum
340 söfnuðum í umdœminu og minnt
þá á, að samkvœmt stjórnarskránm
sé trúfrelsi og samvizkufrelsi í
þýðulýðveldinu.
Mao Tse-Tung var skírður árið 1936
Chou En-Lai er af kristinni fjölskyld0
kominn
Þetta œttu að þykja fréttir fyrir þó<
sem ekki vissu það áður!
Norska blaðið „UTSYN" (6. febr-
1972) skýrir frá því, að síra Richard
Wurmbrandt (rúmenski presturinn,
sem getið var í síðasta hefti KIRKJU'
RITSINS), hafi skrifað Nixon, forseta
Bandarikjanna, bréf i apríl 1971, þe9'
ar fyrirhuguð var för hans til Kinfl-
í bréfi þessu gerir síra Wurmbrandt
grein fyrir ýmsu í Kína, en einkum
fyrir stöðu hinna kristnu, sem þ°r
eru. Hann gerir forsetanum grein fyrir
því, að um 100.000 kristnir leiðtogar
sitji í fangelsum eða fangabúðum-
Niðurlag bréfsins er á þessa leið:
„Þar sem þér fáið einkaviðtal
Mao Tse-Tung, œttuð þér að minnast
á „kristindóm" hans. Paul Yi-P'n'
kardináli, sem nú er á Taiwan, seg11'
að Mao Tse-Tung hafi verið fársjúku'r
á árinu 1936, og þá hafi hann beð'ð
um að hljóta skírn. Systir kardinálans<
nunna af Fransiskusarreglu, hafi skíd
hann. Þegar þetta var, var Mao e'pn
af leiðtogum kommúnistaflokksins °9
einn af hinum fremstu. Þess er ®9
getið, að kristindómurinn hafi na
tökum á hugsunarhcetti hans. Hann
hefir ort kvœði, sem nefnist „HIN
ÓDAUÐLEGU" og lœtur þar í M°s
trú sína á eilíft líf. í viðtali við brezka
blaðamanninn Mr. Snow, sem birt et
72