Kirkjuritið - 01.04.1972, Page 84

Kirkjuritið - 01.04.1972, Page 84
feðrunum, treystum vér, að hún verði ekki hrakin, einkanlega þar sem vér, að miklu leyti, gœtum hinna sömu helgisiða, sem áður hafa tíðkast".ll,3. ,,Það eina er tilfœrt (hér), sem nauðsyn þótti að skýra frá, svo að menn kœmust í skilning um, að ekk- ert er lögtekið hjá oss, hvorki I lœr- dómi né kirkjusiðum, sem gagnstœði- legt sé Heilagri Ritningu eða al- mennri kirkju; því að það er fullljóst, að vér höfum af ýtrasta megni goldið varhuga við, að nokkrir nýir og ó- guðlegir lcerdómar smeygðu sér inn í söfnuði vora". Eftirmáli. Af þessum ummœlum er augljóst, að siðaskiptamenn héldu gömlu sið- unum með þeirri undantekningu, að þeir felldu úr það, sem þeir töldu á móti réttri kenningu guðspjalla og kirkjufeðra. Það snerti einkum vissar bœnir. Hins vegar forðuðust þeir að innleiða nýjungar. Einnig bera þœr með sér, að þeir litu ekki á siðina sem lögmál, heldur sem form og reglu til þess að gera uppbyggingu athafnarinnar mark- vissari. Þeir bentu einnig réttilega á, að helgisiðir hefðu aldrei verið eins um alla kirkjuna. Þeir gerðu skýran mun á því, sem menn hafa innleitt og menn geta því breytt, og hinu, sem Guð hefur boðið og aldrei getur breyzt. Þegar Kristján III, konungur Dana, gaf út kirkjuorðu sína 1537, byggði hann helgisiða-fyrirmœli sín á þessu riti. Messa sú, sem þar er gert ráð fyrir, heldur öllum liðum hinnar fornu messu, eins og lúterskir siðaskipta- menn höfðu gert ráð fyrir og með sömu breytingum. Þar er getið ým- Skrautveggur bak við altari. 82

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.