Kirkjuritið - 01.04.1972, Page 90

Kirkjuritið - 01.04.1972, Page 90
bœta úr þeim tómleika, sem einkenn- ir margar nútímakirkjur. Stundum voru tjöld höfð meðfram altari báðum megin. Voru þá fjórar súlur reistar til að bera þau uppi. Þetta hefur verið í einni kirkju hér á landi, Hóladómkirkju. Ekki er gott að sjá neinn skynsamlegan tilgang með því, og ekki hentar það lítúrg- iskum viðhorfum nútímans. Það má heita áfrávíkjanleg regla hér á landi, að umkringja altarið grindum, sem kallast gráður (gradus). Hlutverk þeirra er að gera altaris- gestum auðveldara að krjúpa, meðan þeir meðtaka sakramentið. Áríðandi er, að lögun þeirra sé þœgileg fyrir þá, sem þar krjúpa, svo að þeir fái notið hinnar helgu þjónustu. Sá siður, að krjúpa, kom upp á mið- öldum. Áður meðtóku menn sakra- mentið standandi. Það er galli á þessum sið, að hann bœgir þeim stundum frá, sem erfitt eða ómögu- legt er að krjúpa af heilsufarsástœð- um. Rómverska kirkjan mun vera að leggja þennan sið niður. Grindur þessar eiga að vera opnar fyrir miðju altari, svo að allir í kirkjunni sjái opna leið að aitari. Við upprisu Krists rofnaði fortjald musterisins, og síðan eiga allir þeir, sem í Kristi eru, beinan aðgang að náðarborði Guðs. Framhald í nœsta hefti. þakkargjörð á páskum PRÆFATIO PASCHALIS V. Drottinn sé með yður. R. Og með þínum anda. V. Lyftum hjörtum vorum til himins. R. Vér hefjum þau til Drottins. V. Látum oss þakka Drottni Guði vor- um. R. Það er maklegt og réttvíst. V. Sannlega er það maklegt og rétt- víst, skyldugt og mjög hjálpsamlegt, að vér, Drottinn, alla tíma háloit- lega heiðrum og lofum þig, en þ° einkum á þessum dýrðardegi (eða: þessum tíma), þegar páskalambi voru, Kristi, var fyrir oss fórnfœrt. Því að hann er hið sanna páska- lamb, sem burttók allar heimsins syndir. Sá, sem með dauða sínum hefir vorn dauða sigrað og l'f'® fyrir sína upprisu endurnýjað. Og þess vegna með englunum oQ höfuðenglunum, með tignunum og drottinvöldunum, ásamt með öllum himneskum hirðsveitum syngjum ver lofsönginn þinnar dýrðar óaflátan- lega segjandi: R. Heilagur, heilagur, heilagur ert þu' Drottinn, Guð allsherjar. Himnarnir og jörðin eru full af dýrð þinm- Hosianna í hœstum hœðum. Blessaður sé sá, sem kemur í nafn' Drottins. Hosianna í hœstum hœðum- Úr MESSUBÓK fyrir presta og söfnuSi- tekin saman af síra Sig. Pálssyni 1961’ 88

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.