Kirkjuritið - 01.12.1973, Page 10
að óttast fótœktina, þegar að hans
þjónustu er unniS, enda sýnir regla
Good-Templara, að fótœkir íslending.
ar styrkja bindindismólið um allan
heim. En hvað óhugaleysi almennings
snertir, skiptir þar aðeins ókunnug-
leik. Áhuginn hefur eigi verið vakinn,
af því, að þeir sem vekja óttu, eru of
ókunnugir hinu ytra kristniboði, en
sem vott þess, að óhugi almennings
að móli þessu muni auðveldlega vak-
inn, sýna undirtektir sjómanna fró
Faxaflóa 15. júní þ. ó., þegar ég ó
þiljum „Lauru" kl. 3 e. h. hafði talað
við þó um, að vinna Guði, með því
að skjóta saman til „ísl. kristniboðs"
innra og ytra, og sem ég œtlaði að
leggja fyrir synodus 4. júlí. Á fram-
þiljum gengust þeir fyrir samskotum,
Tobías Finnbogason og Nikulás Eiríks-
son úr Útskálasókn, og urðu 5-10 og
25 aura samskot þessi 10 kr. 21 eyrir,
en þá urðu fleiri, sem óboðnir vildo
styrkja íslenzkt kristniboð: Skipsfjód
„Lauru" Christiansen gaf 1 kr. og 50
aura. Umboðsmaður Jensen gaf fra
sjálfum sér 1 kr. og frá húsbónda sín-
um gróssera Holme 5 kr. Verzlunar'
agent Kristján Jónasson gaf 1 kr. Voru
mér þannig afhentar 18 kr. 71 eyrir
til ráðstöfunar og lýsti ég því yfir þar
og þá, að því skyldi varið til íslenzks
kristniboðs, innra og ytra, sem síðar
skal grein fyrir gjörð.
Grundvöllurinn er þannig lagður
með litlu fé, en í Jesú nafni, og
undirtektir á synodus vœru daufar, Þa
held ég því áfram öruggur, þótt einn,
eins og ég sagði þar í áheyrn allra'
þar sem ég veit að nokkrir embœtris-
brœður mínir eru mér alveg samhuga'
og efast ekki um fylgi þeirra pres,a
í þessu máli, sem af hjarta og frU'
prédika Jesúm Krist, og hann kross-
festan. Þeir munu heldur eigi draga
það að vekja áhuga safnaða sinna a
því Drottins boði að útbreiða Guðs ri^
á jörðinni, þótt í smáum stíl verði a
vera, því vér vitum að í kristniboðinu
er Kristur sjálfur með, og hann
einn fœr um að gefa því vöxt og
gang."
er
við'
296