Kirkjuritið - 01.12.1973, Blaðsíða 50
um og nota þá sem ódýran vinnukraft.
Þetta er mjög algengt t. d. í S-Ameríku
og reyndar víðar. Þegar kristniboðið
kermur til þessa fólks og upplýsir það,
þá eiga sér óhjákvœmilega stað mikil
umbrot. Fólkið á rétt á almennum
mannréttindum eins og aðrir. Þetta
hefur leitt til byltingar og verða
kristniboðarnir þá beint eða óbeint
þátttakendur í henni. Það er ekki óal-
gengt, að kristniboðar verji svo og svo
miklu af tíma sínum í innanríkismál
viðkomandi þjóðflokks eða ríkis til
þess að réttlœtið nái fram að ganga.
Hér vœri hœgt að taka ótal dœmi um
margvíslegt starf kristniboðsins, sem
sýnir þátttöku þess í öllum mannleg-
um þörfum, þó ekki sé kvikað frá Bibl-
íulegum, evangeliskum kristindómi.
Heimsráð kirkna, sem án efa hefur
leitt margt gott af sér um árin, hefur
hins vegar smátt og smátt breytt um
stefnu og grundvöll, þótt hann í upp-
hafi hafi verið góður. „Allir eiga þeir
að verða eitt", var takmark samtak-
anna eins og margra annarra alþjóð-
legra hreyfinga (sbr. einkunnarorð
K. F. U. M.). En einingin verður að
vera í Kristi Jesú, sem dó á krossi, var
grafinn og reis á þriðja degi aftur upp
frá dauðum, en ekki í einhverjum
Kristi, sem liggur hulinn í trúarbrögð-
unum.
„Ef einhver boðar annað fagnaðar-
erindi en það, sem vér höfum boðað
yður", segir Páll postuli í Galatbréf-
inu, „þá sé hann bölvaður”. Hér er
ekki skafið af hlutunum, hér talar sá,
sem hefur reynt sannleiksgildi fagn-
aðarerindisins, kristniboðinn, sem
sagði: „Vei mér ef ég boðaði ekki
fagnaðarerindið." Páli var það full-
komlega Ijóst, að hann var erindreki
í Krists stað og átti að biðja í Krists
stað: Látið sœttast við Guð (11. Kor
5:19n).
Kristniboðseldurinn, sem kviknaði
á hvítasunnudaginn forðum, hefur
ekki slokknað og mun ekki slokkna.
Það eru óneitanlega margir, sem hafa
reynt að slökkva hann og enn fleiri
munu reyna það með nýjum „slökkvi-
tœkjum".
Kirkja Krists er og verður alltaf að
vera stríðandi kirkja, kirkja, sem berst
ekki í óvissu, heldur öruggu trausti
til hans, sem er sigurhetjan, konungur
konunganna, Drottinn, Jesús Kristur.
Skrifað í Osló á aðventu 1973
Jón Dalbú Hróbjartsson.
HEIMILDIR:
Peter Beyerhaus: Krise i missionen, Oslo 1970'
O. G. Myklebust: Mission i en ny tid, Osló 71-
E. Molland: Konfessionskunnskap, Oslo '61-
Wislöff/Beyerhaus: Mission Guds redningsaksjon,
Oslo '73.
World Concil of Churches: Bangkok Assembly
1973.
Beyerhaus: Die Weltenkonferenz von Bangkok-
personliche Eindruke.
Timaritsgreinar:
Torvald Oftested: Kritisk analyse av tendenser
og synsmaater innen den ökumeniske bevegelse
i dag, TTK 3/73.
Tor Jörgensen: Bangkok '73: Frelse i dag, tlfð
theologi 2/1973.
Beyerhaus: Utfordringen fra Bangkok, Fas
Grunn 5/73.
^Jgl*
Frankfurter Erklárung zur Grundlagkrise
Mission.
336