Kirkjuritið - 01.12.1973, Blaðsíða 66
vandamál. Síra Sigurður Haukdal,
prófastur Rangœinga, bar fram þá
ósk við sóknarnefndir og hreppsnefnd-
ir í héraðinu, að þœr veittu fjárhags-
stuðning, og var því góðfúslega tekið.
Lögðu hreppsnefndir fram 25 kr. á
hreppsbúa, en sóknarnefndir 10 kr.
á hvert sóknarbarn.
Er þess að óska, að framhald geti
orðið á starfi þessu og þá helzt víðar.
Æskulýðsnefnd Rangœinga hefur
einnig haldið fermingarbarnamót und.
an farin ár. Ennfremur hefur hún kom.
ið á heimsóknum presta og annarra
góðra manna í alla skóla í héraðinu.
Kristilegt stúdentafélag
Kristilegt stúdentafélag hefur löngum
haft gott samstarf við systurhreyfing-
ar sínar á Norðurlöndunum, þœr sem
starfa á biblíulegum grundvelli. Marg-
ir minnast þess, er kristilegt norrœnt
stúdentamót á biblíulegum grundvelli
var haldið hér á landi árið 1950. Hin
síðari ár hefur þátttaka íslendinga í
þessum mótum farið mjög vaxandi.
Á síðasta sumri sóttu 30 landar slíkt
mót, er haldið var í Ábœ á Finnlandi.
Vegna þessa aukna áhuga íslend.
inga á kristilegu samnorrœnu stúd-
entastarfi er í ráði að halda norrœna
mótið hér á landi sumarið 1975. Verð-
ur það i umsjá Kristilegs stúdentafé-
lags, og er búizt við u. þ. b. 4-600 erl.
stúdentum hingað til lands af þessu
tilefni. Mótið mun standa í 6 daga og
verða opið almenningi að nokkru.
Ljóst er, að i mikið er ráðizt af svo
smáu félagi, sem Kristilegt stúdenta-
félag er. Það rœðst þó í þetta vegna
þeirrar vissu, að mótið muni verða
kristnilífinu í landinu til nokkurs
gagns. Því heitir félagið á alla kristna
menn, að þeir leggi því lið í bœnum
sínum og á annan þann 'hátt, sem
þeirra efni standa til.
FrœSslumyndasafn ríkisins
Forstöðumaður Frceðslumyndasafns
ríkisins Benedikt Gröndal, alþingis-
maður hefir skrifað KIRKJURITINU °9
tjáð því, að Frœðslumyndasafnið hafi
gefið út þrjár myndrœmur við bók
Sigurðar Pálssonar: JESÚS OG BÖRN-
IN. Hefir höfundurinn valið þessar
myndrœmur og er þeim œtlað
koma til viðbótar við efni bókarinnar.
Ennfremur ritar forstöðumaðurinn;
„Myndrœmur eru i eðli sínu hið
sama og litskuggamyndir, nema hvað
myndirnar eru hver á fœtur annarri
á einni filmurœmu. Flestir skólar eiga
skuggamyndavélar með útbúnaði til
að sýna myndrœmur, og er mja9
auðvelt að lœra meðferð þeirra.
Myndrœmurnar, sem Sigurður Páls'
son valdi með bók sinni, eru þrjar-
„í upphafi skapaði Guð," „Bernska
Jesú" og „Jesús að starfi." Þœr sýna
aðallega það umhverfi, sem JesaS
fœddist og ólst upp í, eins líkt hina
upprunalega og nú er unnt. Myndirn
ar eru gerðar í Englandi, en þeim fy^9
ir íslenzkur skýringartexti, sem Sigur
ur samdi.
Vafalaust gœtu þessar myndir kom
ið prestum og öðrum áhugamönnum
352