Kirkjuritið - 01.12.1973, Blaðsíða 68
hjá Húsameistara ríkisins og gerir til-
lögur um endurbœtur bygginga á
prestssetrum. Engir útgjaldareikning.
ar þessu viðkomandi eru greiddir í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
nema þeir séu fyrst undirritaðir hjá
þessum fulltrúa Húsameistara ríkisins.
Eftirlitsmaður kirkjugarða situr í
Hveragerði og er helzt að ná til hans
þar. Á biskupsskrifstofu, sem er á enn
öðrum stað, starfa a. m. k. fjórir starfs-
menn að hinum ýmsu málefnum
kirkjunnar: biskupsritari, við ýmiss
konar afgreiðslu, œskulýðsfulltrúi og
fulltrúi hans, við œskulýðsmál, sum-
arbúðamál o.fl. og framkvœmdastjóri
hjálparstofnunar kirkjunnar. Allt þetta
starf þarf fjármögnun frá dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu, er sœkir féð
til fjárveitingarnefndar Alþingis, þann.
ig að starfskraftur biskups, sem yfir-
manns biskupsskrifstofu, fara œrið til
þess að knýja á um fjárveitingar til
hinna ýmsu málefna. Enginn einn að-
ili virðist bera ábyrgð á fjármálum
kirkjunnar. Þannig leyfist að selja
prestssetursbústaði fyrir tugi milljóna
á sama ári og viðhald og endurbygg-
ingar á öllum prestssetursbústöðum
nema 12 milljónum. Einnig hefur leyfzt
að selja undan kirkjunni kirkjujarðir
og hluta kirkjujarða án þess að kirkj-
an hafi notið góðs af á nokkurn máfa.
Margt fleira mœtti telja til, sem nefnd-
in rœddi sín í millum og tók tillit til í
sambandi við þessar tillögur um nýja
starfshœtti kirkjunnar. Þessar tillög-
ur verður þó að skoða sem frumdrög
eða umrœðugrundvöll, sem senda
yrði prestastefnu og Kirkjuþingi, ef
héraðsfundur Rangárvallaprófasts-
dœmis samþykkti.
Eftirfarandi tillögur var millifunda-
nefnd Rangárvallaprófastsdœmisásátt
um að senda í meginatriðum frá sér
fyrir Héraðsfund 1973:
STARFSHÆTTIR KIRKJUNNAR
1. Kirkjuþing: Það komi saman 1
Reykjavík 3ja hvert ár, seinni hluta
júní. Biskup (slands sé forseti þingsins
og stjórnandi. Þingsetu hafa allir starf-
andi sóknarprestar landsins ásamt
einum leikmanni úr hverju prestakallú
(tveir leikmenn úr tvímennispresta-
köllum) kosnum af héraðsfundi haust-
ið áður. Kirkjuþing starfi í tvo daga °9
taki einungis fyrir eftirfarandi máh
a) áður samþykkt mál frá árlegam
leikmanna- og prestastefnum 1
hvoru biskupsdœmi fyrir s|9;
Kosin millifundanefnd útibúi
málið skriflega fyrir þingið °9
fylgi því úr hlaði.
b) áður samþykkt mál af presta
félögum og Prestafélagi íslands/
og sé þeim fylgt úr hlaði á sama
hátt og í a-lið.
c) mál frá framkvœmdastjorn
kirkjuráðs, og sé þeim
hlaði á sama hátt og í a' 1
þ. e. skriflega.
Öll mál, sem berast kirkjuþingi Þur ^
að hafa borizt þeim, sem þingse
hafa, með minnst mánaðar fyrirvaröj
ásamt greinargerð flutningsmanna-
lok kirkjuþingsins fari fram kosnm
til kirkjuráðs, skv. nr. 2. .,
2. KirkjuráS: Það fari með Yfirst|^T1.
kirkjunnar og komi málefnum, s
þykktum á kirkjuþingi, til r
kvœmda. Sjálfkjörnir í kirkjuráði
354