Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1973, Page 18

Kirkjuritið - 01.12.1973, Page 18
Johannes Brandtzœg. aði í Santalistan á Indlandi, en saga hans skal ekki sögð að sinni. Er þar kom, að kristniboðum urðu greiðar leiðir inn í Kína á áttunda tug nítjándu aldar, tók athygli mjög að beinast þangað. Stjórnendur Hins norska kristniboðsfélags töldu þó ekki fœrt að senda kristniboða til Kína. Ekki skorti þó hvetjendur. Enn fóru öldur trúarvakninga um norskar byggðir og einkum um Vesturlandið, þegar hér er komið sögu. Fóru brátt að skjóta upp kolli, þar um slóðir, félög, er styðja vildu kristniboð í Kína. Á hvíta- sunnu árið 1891 komu fulltrúar þeirra saman ! Bergen og stofnuðu Hið norsk-lútherska Kínakristniboðssam- band (Det Norske Lutherske Kinamisj- onsforbund), Urðu megingreinar norsku kristniboðshreyfingarinnar þar með tvœr, þótt allmörg smœrri félög starfi óháð stóru samtökunum. Einkennileg og fremur dapurleg at' vik ollu því, að nokkur fjarski varð milli stórveldanna tveggja einkum 1 fyrstu. Hin nýju samtök sendu þegar átta kristniboða til Kína. Var fyrir þeim flokki Johannes Brandtzœg, ungur guðfrœðingur, hinn mesti atgervis- maður. Sótti hann um prestsvígslu, sv° sem tíðkazt hafði hjá þeim guðfrceð- ingum, er gerzt höfðu kristniboðar gamla félagsins. Nú brá hins vegar svo við, að þrír biskupar neitaðu Brandtzœg um vígsluna hver e^'[ annan. Kristniboðarnir átta hlutu þvl einungis fyrirbœn og handayfirla9n ing stjórnar kristniboðssambandsin5' áður en þeir héldu til Kína. Fám ar' um síðar ákvað aðalfundur sam bandsins, að kristniboðar þess skyl u ávallt vígðir með þessum sama hcettr 304

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.