Jörð - 01.09.1942, Side 7

Jörð - 01.09.1942, Side 7
gjaldþrota. Útlendingar voru á bezta vegi með að eignast allt, sem i landinu er. Það þurfti lieila lieimsstyrjöld, til að bjarga þjóðinni frá því að lenda með öllu sínn undir hamri útlendra uppboðshaldara. Því ekki var um að lala, að stjórn- málamennirnir og stéttarleiðtogarnir létu svo litið að taka höndum saman þjóðinni til bjargar. Þeir gerðu það að vísu, þegar hvorttveggja vofði alveg vfir: ríkisgjaldþrotið og heimsslyrjöldin, — en með hvilíkum „beilindum“ bera blöð þeirra lieztan vott um — kynslóð vorri til ævarandi smánar. Enda fór jiað að líkindum, að „þjóðstjórn“ jieirra grotnaði sundur af þeirra eigin smásálarskap, „flokkshagsmuna“- sjónarmiðum og óheilindum. í dag getur liver flokkur fyrir sig gefið sinni eigin dáleiddu björð jiá skýringu ó öllu þessu, er hún lætur sér nægja: „Ég fékk ekki að ráða. Hinir fóru sínu fram.“ En sagan mun undrast mátt múgsefjunarinnar og dávaldarnir munu fá sinn dóm. Og þeir þurfa ekki að ætla, að dómurinn ónáði jiá ekki, því að þá verði þeir danðir og komnir undir græna torfu -— svo sannarlega sem réttlæti er, jn'átl fvrir allt, uppistaða tilverunnar. II. — eða hvað?! AÐ ER HÆGAST að heimta og áfella, munu margir mæla. Kom jiú sjálfur, er heimtar og áfellir, fram með hagnýtar tillögur. — Það er ekki nema sanngjarnt að ætlast til, að óbreyttur alnienningur komi fram með uppástungur til athugunar í þjóðmálaviðhorfum og jxí allra helzt, þegar flokkarnir hafa svo að segja girt fyrir, að þeir geti komið Ser saman, hvað sem við liggur, með skefjalausum stórmæl- l>m sínum liver í annars garð. í öðru orðinu þvkjast þeir hta á það sem lífsnauðsyn og þegnskaparskvldu, að með flokkunum takist samslarf. í liinu orðinu lýsa þeir hver öðrum þannig, að jiað ætti bæði að vera jijóðarvoði, að and- stöðuflokkur kæmi nálægt landstjórninni, og mannskemm- arnli fyrir sjálfa þá að bafa nokkur mök við bann. Þannig ræðast þrælar við. Hér skal ekki revnt að rekja, livað því veld- Ur, að íslenzkir stjórnmálamenn ræðast þannig við á örlaga- árinu 1912, en á hitt skal minnt, að tekið er fram í Sturl- JÖRD 197

x

Jörð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/467

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.