Syrpa - 01.09.1911, Síða 54

Syrpa - 01.09.1911, Síða 54
52 SYRPA. boriö fyrir ekka. Stigu þau nú í bátinn og reru duggarar greiölega út aö skípi sínu. Var nú flutning- ur þeirra hafinn upp á dekk og sett- ur síðan niöur í lest, en skipstjóri fylgdi þeim hjónum niöur í káetu og sýndi þeim hvar þau gætu sofiö. Varð Sigríöur fegin, aömegaleggja >ig fyrir, því hún var í sannleika oröin þreytt eftir þessa löngu ferö. Einar lá lengi vakandi, því hann hafði nú um margt aö hugsa, samt vann svefninn á honum um síöir, en skipverjar undu upp segl og létu í haf, því þeir voru albúnir til heim- ferðar þegar Einar hitti þá. Gekk ferðin að öllu leyti vel og komuþau eftir 3 daga til Hull á Englandi. Sigríður náöi sér fljótt eftir ferö- ina og dvöidu þau hjónin í Hull í tvær vikur, hjá Crawfords hjónunum og höfðu sér þaö til skemtuuar aö ganga um borgina og líta eftir ýmsu sem nýstárlegt var, undi Sigríður því vel. Hún lagði mikiö kapp á aö nema enska tungu og tókst þaö furðu vel. Kennararnir voru maöur hennar og frú Crawford, sem sjálf var barnaskólakennari og haföi því bæði lag og löngun til þess starfa. Einar geröi sér ei heldur tilsögnina ónýta og fór þeim svo mikið fram á þessum stutta tíma, aöfrú Crawford gat ekki annaö, en lýst undran sinni bæöi yfir námfýsi þeirra beggja og næmi. Vér veröum nú þessu næst aö segja frá því er til tíðinda geröist heima á íslandi og er þá fyrst aö minnast á ferðir Bjarna. Eftir að aö hafa skilið viö kunningja sinn Einar og systkinin, eins og áður er frásagt, hélt hann alt hvað aftók niður til sveita; komst hann meö heilu og höldnu aö bæ sínum og var það snemma morguns, stuttu fyrir fótaferðartíma. Hann spretti af hestum sínum og fiutti þáíhaga skamt frá túninu, lagBi sig svo til svefns, en ekkihafðihannlegiðogþví síður sofið Iengi þegar heimilisfólkiö reis úr rekkjum sínum og varö þess áskynja aö Bjarni var heim kominn. Gekk þá maöur eftir mann til hans, bæði til aö heilsa honum og spyrja hann frétta. Var nú öllum tíðrædd- ast um Einar og hvernig þeim heföi gengið feröin og þar fram eftir göt- unum. Leysti Bjarni úr öllu eins vel og hann gat. Samt leiö ekki á Iöngu, þar til hann komst í hálfgerö- an bobba, hann var spurður aö svo mörgu viövíkjandi ferð þeirra og ýmsu frá Vopnafiröi, sem hann átti ekki von á og gat náttúrlega ekki svarað, því hann hafði aldrei þangað komið í ferö þessari. Hann lenti því þarna í stökustu. vandræöi. Húsbændurnir vildu fá að vita hvaða verð væri á matvöru þar eystra og eins' hvaö mikiö væri gefið fyrir ull °& tólg og svo vildi kvennfólkiö endilega fá aö vita hvaö hann hefði séð þar af fallegnm sjölum, klútum, höttum, brjóstnálum, hringjum, lokkum og óteljandi fleiru, sem siö- venja var að spyrja þá eftir, sem ný komnir voru úr kaupstaö. Þetta var Bjarna ofvaxið, en samt reyndi hann að snúa sig út úr þessu öllu á þann hátt aö segja aö hann hefði ekki haft tíma til aö koma í búöir og spyrja um prísa, því þeir Einar heföu orðið seint fyrir og svo kvaðst hann hafa veriö hálf-Iasinn og hefði því ekki haft sinnu á að líta í kring- um sig og lá nærri aö sumt af fólk- inu væri farið aö taka þetta trúan- legt, en þá kom einn af vinnu- mönnum inn, sem komiö hafði frá smalamensku og séð hestana, þar sem þeir voru á beit í haganum og hafði hann fljótt tekið eftir jörpu hryssunni. Sá heilsaöi nú Bjarna og tók til aö spyrja hann frétta, bæöi um ferðina og ýmislegt af Vopnafirði, því hann var þar kunn- ugur, en þó mest um jörpu hryss- una, sem hann áleit að væri eitt- hvert mesta gersemi, sem hann hefði séð og rak nú hver spurningin aðra, fyrst hvar hann hefði fengið hana, svo hvaö hún heföi kostað og síöast hvaö gömul hún væri. Tókst Bjarna furðu vel aö leysa úr þeim spurningum. Hann sagöist hafa fengíö hana hjá manni, sem ætti heima austur í Fljótsdalshéraöi og

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.