Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Blaðsíða 38
38
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
um sjómanna. Þannig hafa komið
fram tillögur á þingum FFSÍ um að
bókleg kennsla Slysavarnaskóla sjó-
manna og aðstaða fyrir sjóslysanefnd
og Sjávarútvegsskóla S.Þ. gæti verið í
Sjómannaskólanum. Slík starfsemi
félli að náminu sem fyrir er og okkur
ekki til trafala. Þvert á móti geta þær
verulega lyft hér undir og eflt mennt-
un skipstjórnarmanna.”
Unnið verður í samvinnu eftir
nýja deiliskipulaginu
„Eins og hver maður veit erum við
í næsta nágrenni við Kennaraháskól-
ann. Þegar unnið var að nýju
deiliskipulagi á lóð Sjómannaskólans
hér á Rauðarárholti var líka ^ert ráð
fyrir að skólarnir þrír (KHI, Stýri-
mannaskólinn og Vélskóli íslands)
nýttu sér þessa nálægð með margvís-
legum hætti. Til dæmis er í skipulag-
inu gert ráð fyrir sameiginlegu mötu-
neyti, félagsaðstöðu (sundlaug og
íþróttahús), dagheimili og nemenda-
bústöðum. Þá var gott til þess að
hugsa hve nemendur beggja skólanna
gætu víkkað sjóndeildarhring sinn og
haft verulegt gagn af því að kynnast
hverjir öðrum í nánu sambýli og sam-
vinnu.
Ekki var heldur annað að sjá en
mönnum litist harla vel á þetta og þar
á meðal okkur Björgin Þór Jóhanns-
syni skólameistara V. I, en við áttum
sæti í nefnd þeirri sem vann að skipu-
laginu. Skipulagið var enda samþykkt
í borgarstjórn hinn 10. september
1996. Þar má líta heildstætt og þaul-
hugsað skólahverfi sem fullkomin
sátt ríkti um. Þar er gert ráð fyrir
myndarlegri lausn á húsnæðisvanda
vegna verklegu kennslunnar með
stækkun vélasalar V.í og tækjahúss,
sem er miðstöð fyrir herma. Þessi að-
staða fyrir verklega námið gæti einnig
komið smíðakennslu kennara til góða.
Þá yrði bókasafn okkar flutt af efstu
hæð Sjómannaskólans á fyrstu hæð-
ina, en þannig gæti safnið orðið raun-
veruleg menningarmiðstöð nemenda
og sjómanna almennt, en það er helg-
að siglingum og sjómennsku og vél-
um og tækni um borð í skipum. Með
flutningi safnsins skapaðist loks rými
fyrir vinnuaðstöðu kennara, en hún er
sem stendur bágborin. Allt er skipu-
lagið í anda þeirra skoðana sem fram
komu árið 1938 á Alþingi, en þar seg-
ir: „Hann (þ.e. Sjómannaskólinn) þarf
mikið húsrúm nú, en vafalaust miklu
meira er fram líða stundir... Enginn
sér fyrir þróun langrar framtíðar.“
Það hefðu orðið mikil vonbrigði ef
þessu skipulagi hefði verið kollvarp-
að og við látnir gjalda nálægðar KHÍ
í stað þess að njóta hennar. Satt að
segja var ég í hjarta mínu alla tíð
bjartsýnn á að til þessa myndi aldrei
koma. Ráðherra sagði enda á Alþingi
að engin ákvörðun hafi verið um þetta
tekin, heldur að aðeins væri verið ver-
ið að skoða málin. Hann kveðst held-
ur ekki myndu ganga gegn mönnum
og féllst því strax á tillögur okkar
skólameistara og rektors KHI um
samnýtingu húsnæðis. Hugmyndin
um ótímabæra og afar kostnaðarsama
flutninga og dýra leigu á húsnæði
annars staðar var því góðu heilli lögð
til hliðar. Þess í stað á að hefja við-
gerðir á húsinu sem fyrst, með þarfir
Sjómannaskólans og Vélskólans í
huga, eins og menntamálaráðherra
staðfesti á ágætum fundi 27. febrúar
sl. og síðar í bréfi til rektors KHÍ.“
Áfangakerfið mun opna námið
og auka aðsókn
„Allt fram til þessa hefur Stýri-
mannaskólinn starfað samkvæmt
bekkjakerfi, en nú er í ráði að næsta
haust verði tekið upp hreint áfanga-
kerfi. Hinum fjórum stigum skip-
stjórnarnámsins (fagnámsins) verður
þó haldið, því á þeim byggjast at-
vinnuréttindin. Þeir sem þegar hafa
lokið 1. stigi munu þó halda áfram í
bekkjakerfinu á 2. og 3. stigi, meðan
bekkjarkerfið er „keyrt út“, ef svo má
taka til orða.
Með áfangakerfinu verður allt
fyrra nám umsækjenda um skólavist
metið, og gagnast mönnum þannig
nám sitt úr hvaða öðrum framhalds-
skóla sem er. Því geta þeir sem hafa
góðan undirbúning í almennum grein-
um, tungumálum, stærðfræði, eðlis-
fræði, tölvufræðum, o.s. frv., verulega
flýtt fyrir sér og snúið sér fyrr að sér-
hæfðu námi skólanna.
Akveðið hefur verið að bjóða nýj-
um nemendum upp á sérstaka Sjávar-
útvegsbraut samhliða fagnáminu.
Kosturinn við þessa nýju braut er sá
að þar verður hægt að taka inn ýmsa
þætti, ekki síst verklega, auk almennu
greinanna, sem framvegis verða
kenndar sameiginlega fyrir bæði
Stýrimannaskólann og Vélskólann,
eins og áður segir. Meðal helstu verk-
legra greina er kennsla á ýmis tæki,
herma eða samlíkja, verkleg sjóvinna
og fræðsla um öryggismál og skyndi-
hjálp. Á Sjávarútvegsbraut verður
kennsla til 30 rúmlesta réttinda, en
þeirra réttinda er einnig hægt að afla
sér við sex skóla og skóladeildir auk
Stýrimannaskólans. Þessir skólar eru
Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Fram-
haldskóli Vestfjarða, Verkmennta-
skólinn á Akureyri, Sjávarútvegssvið
á Dalvík, Verkmenntaskóli Austur-
lands, og Framhaldsskólinn í Vest-
mannaeyjum, skipstjórnardeild.
Sjávarútvegsbrautin er 68 eininga
nám sem taka mun að meðaltali tvö ár
eða fjórar annir, en það fer eftir dugn-
aði hvers og eins. Við sjáum því að
maður með góðan undirbúning getur í
framtíðinni lokið fagnáminu fyrr en
ella. Þegar hann hefur lokið Sjávarút-
vegsdeildinni að hluta eða að fullu á
hann að geta lokið fagnáminu á næstu
2-3 skólaárum. Frá þessu hefur þó
enn ekki verið endanlega gengið.
Margra kosta verður völ. Menn munu
geta komið hér og tekið alla almenna
áfanga og áfanga Sjávarútvegsbraut-
ar, tekið vélavarðarnám, eða 1. stigið
og vélavarðarnám, ef þeim sýnist
svo.“
Yfir 700 skírteini á fjórum
árum
„í Stýrimannaskólanum höfum við
haldið yfir 100 námskeið í hinum
ýmsu greinum á árunum 1993-1997.
Hér á meðal er námskeið í fjarskipt-
um fyrir starfandi skipstjórnarmenn
(GMDSS), ratsjársiglingum (ARPA),
meðferð á hættulegum farmi (IMDG),
sjúkra og slysahjálp og meðferð lyfja-
kistu. Fyrir almenning er svo á haust-
og vorönn boðið upp á átta vikna 30
rúmlesta réttindanám. Síðastliðin
fjögur skólaár hafa samtals verið gef-
in út yfir 700 skírteini vegna þessara
námskeiða, en um 300 manns hafa
lokið 9 daga fjarskiptanámi. Er mik-
ilsvert að alþjóðakröfum um kunnáttu