Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1927, Qupperneq 20

Eimreiðin - 01.04.1927, Qupperneq 20
116 ÞORGEIR LJÓSVETNINGAGOÐI eimreiðin Metorðagirnd og höfðingjahollusta íslendinga á söguöldinni er svo alkunn af sögunum, að henni þarf lítt að lýsa. Það fyrsta, sem menn gerðu, er menn komu til útlanda, var að reyna að koma sér í mjúkinn hjá konungunum og fá hjá þeim hirðvist og metorð. Og einmitt af þessu hrósa þeir sér mest, þegar heim er komið, og eins söguritararnir síðar meir. Og allajafna, er Noregskonungar gera orðsending til íslenzkra höfðingja um eitt eða annað, þá þjóta þeir upp til handa og fóta að gera þeirra vilja, svo að nærri stappar, að stundum sé um hrein landráð að tefla (sbr. Guðmund ríka). Nú var það alkunnugt á Islandi, hvert heljarkapp Ólafur konungur Tryggvason lagði á að kristna Island. Það var þv1 ekki mikillar vináttu að vænta úr þeirri átt fyrir þá, sem a móti því lögðust. En hins vegar gátu þeir átt von á miklum frama og konungshylli, sem beittust fyrir að koma kristninni á. Þetta hefur sjálfsagt orðið þungt á metunum hjá mörgum, og þar á meðal hjá Gissuri hvita og Hjalta Skeggjasyni, sem urðu helztu forsprakkarnir fyrir kristnitökunni. En við það bættist og annað, sem ekki mun hafa ráðið minna; og það var, að þeir voru í frændsemi við konunginn, Gissur og Olaf- ur Tryggvason þremenningar í móðurætt og Hjalti tengdasonur Gissurs, svo að kona hans og konungurinn voru að þriðja og fjórða. Það má nærri geta, hvern þátt þessi frændsemi hefur átt í afstöðu þeirra til kristniboðsins, sem þeir vissu, að konunginum var svo mikið áhugamál. Þeir sáu sér leik a borði, ef þeir yrðu fylgjandi kristninni, að komast til meiri metorða en nokkrir aðrir Islendingar. Og þetta brást heldur ekki, er þeir komu til Noregs. Því bæði gekst konungur við frændseminni og hafði svo mikið við Gissur, að hann lét hann „sitja fyrir ádrykkju sinni, innar en lenda menn“, sem þó annars höfðu mest metorð allra við hirðina. Það er annars alleinkennilegt að taka eftir því, hve mikil áhrif þessi frændsemi íslendinga við Noregskonunga tvívegis hafði á örlög Islands og sögu. Fyrst frændsemi Olafs Tryggua- sonar og Gissurar hvíta, sem kristnitökunni fékk á komið a Islandi; og þar næst frændsemi Gissurar jarls og Hákonar konungs gamla. Því Gissur jarl var í beinan karllegg kominn af Gissuri hvíta og var auk þess í móðurætt skyldur konung-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.