Eimreiðin - 01.04.1939, Blaðsíða 92
EIMREIÐIN
Svefnfarir.
Eftir Alexander Cannon.
III. KAFLl
Hefur maðurinn fleiri en eina vitund? — Hinar
þrjár vitundir sálarlífsins — Fasthijgli fœrir þér
signr — Þráðlausar skeytasendingar hugans —-
Lögmál fasthyglinnar — Hinn þröngi vegur —
Orkulind lífsins — Innri sýn.
Hefur maðurinn fleiri en eina vitund?
I læknisfræðinni er oss
kent, að mannslíkáminn, þar
með talinn heilinn, endur-
nýist eða gerbreytist á hverj-
um sjö árum. Þetta gefur til
kynna, að heilinn deyi á
hverjum sjö árum, svo að
heili þinn í dag er aðeins
sjö ára gamall! Þó inanstu
mörg ár aftur í tímann,
meira en sjö ár og mörg yðar
mörgum sinnum sjö ár.
Marga atburði frá æskuárun-
um getur hinn fullorðni mað-
ur kallað skýrt og greinilega
fram í huganum, ef hann vill.
Hann notar til þess minnið.
En hvernig getur þú nú mun-
að aftur i tímann um marga
áratugi, þegar heili þinn er
svona ungur? Það er af því,
að þú ert sál, en ekki líkami.
Þú ert máttug'ur andi, og
líkami þinn, heilinn meðtal-
inn, er aðeins þjónn þinn.
Andinn er sá, sem varir.
En hver er þá hinn raun-
verulegi líkami þinn? Hvort
er það sá, se.in lifir í Ijósri
mynd og ímyndunarafl þitt
varðveitir eins lengi og þú
ert sjálfur til, eða sá, sem
hrörnar, leysist upp og hverf-
ur i heild til jarðarinnar á
hverjum sjö árum? Eða svo
vér höfum spurninguna víð-
tækari: Hver eru hin raun-
vcrnlegu fvrirbrigði lífsins?
Þau, sem ímyndunaraflið
skapar og vitundin varðveitir,
eða þau, sem fyrir augun
bera í hinum ytra heimi,
veðrast og leysast sundur eft-
ir stutt skeið? Mér kemur