Eimreiðin - 01.04.1939, Blaðsíða 103
eimreiðin
VESTUR-ÍSLENZKUR FRÓÐLEIKSJÍAÐUR
215
Lsndingarstaður á Róbertstanga. Hús bróður Mj'rdals stendur skamt frá
^O’ggjunni, sem sést á mvndinni. En nokkrir Islendingar eiga heima á
þessum slóðum.
Til næsta barnaskóla voru fjórtán mílur (22% kílómetrar).
Hefði skóli verið í námunda við staðinn, myndi ég ef til vill
^afa notið þar náms yfir háveturinn. Því láni var nú ekki
fagna. En á þessum stað var það, sem ég fékk fyrst veru-
lega löngun til þess að reyna að skilja það, sem umhverfis
n«g var. Og hér lærði ég að lesa ensku, tungu, sem mér var
nn orðið jafn tamt að tala og innfæddum. Ég leitaðist við að
fræðast um eðlisfar allra fugla og dýra, er ég sá, tók að safna
fuglaeggjum og átti hátt á annað hundrað tegundir, þegar ég
fór frá Dakota vestur á Iíyrrahafsströnd vorið 1887, þá á
finitánda ári. Ég settist að á Vancouver-eyjunni, í borginni
Victoria, sem er höfuðstaður British Columbia og stendur á
suðurodda eyjarinnar. Þar var ég um sex ára skeið. Þaðan
fór ég til San Francisco í Californíu og átti þar nokkurra mán-
aða dvöl. En á Tanganum (þ. e. Point Roberts) hef ég átt
heirnilisfang síðan í júnímánuði 1894.“
í Victoria var vitanlega enginn hörgull á skólum, en lífs-
þjöruin Mýrdals var þannig háttað, að hann varð að fara að
'inna fyrir sér undir eins og þangað var komið. Hinum fáu
tómstundum sínum varði hann til sjálfsnáms.