Eimreiðin - 01.04.1939, Blaðsíða 109
EIMREIÐIN
[/ þessum bálki birtir EIMREIÐIN stuttar og gagnorðar umsagnir og
l’réf frcí lesendum sinum, um efni ]>au, er hún flgtur, eða annað á dag-
skrá þjóðarinnar.]
Sönnun á setningu í flatarmálsfræði.
[Ég hef sent mínum gamla og góða kennara og ágæta stærðfræðingi,
IJorkeli Þorkelssyni veðurstofustjóra, eftirfarandi bréf Árna S. Mýrdals
J'firlits, og fylgir umsögn Þorkels hér á eflir. Þó að íslendingar séu
yfirleitt áhugasamari um flest önnur fræði en stærðfræði, er bréf Mýr-
dals birt hér handa þeim að hrjóta heilann um, sem gaman hafa af. Og
vist væri fróðlegt að vita hve margir alþýðumenn á Islandi glíma við
stærðfræðileg viðfangsefni i tómstundum sínum, eins og þessi landi
v°r vestur í Washington-fylki. Ritsj.]
í leit minni að uppkasti að grein, er ég hafði fyrir löngu ritað, scm
Éunningja minn langaði að sjá, rakst ég á uppkast að bréfi, er ég hafði
skrifag góðkunningja mínum í Bellingham. Eftir að hafa hlýtt með at-
hygli á lestur bréfsins flaug honum i hug, að þeir lesendur blaða vorra,
sem leggja stund á stærðfræðileg efni, kynnu að hafa gaman af að lesa
utdrátt úr þessu bréfi. Og er þetta, í fám orðum sagt, orsökin til þess að
eS snaraði kjarna bréfsins á íslenzku.
Maðurinn, sem bréfið var stílað til, er alkunnur stórvirkjafræðingur,
skozkur að ætt. Það var síðla sumars 1926, að við vorum við jiriðja mann
a® skeggræða um hornafræðina i sambandi við þríhyrningsmælingar, þvi
m*lingamaðurinn var þá að gera nákvæmar mælingar að uppdrætti, fyrir
hriðja manninn, af laxalögnum, sein lágu rúmar þrjár mílur undan landi.
iJað var eigandi lagnanna, sem hóf fyrstur máls á þessu efni. Hann var
að finna að mælingaraðferð þeirri, sem notuð var. Þegar hér var komið
sogu var hann spurður að, hvaða aðferð hann mundi beita við slíkar
ni»lingar. Þótt hann segðist að vísu enginn mælingasnillingur vera, kvaðst
hann engu síður vita, að aðrar aðferðir væru einnig notaðar við slílcar
Inælingar. Segir mælingamaðurinn þá, að, að því er hann bezt viti, sé
einungis ein aðferð nothæf við að mæla lengd lagnanna úr landi, sem
au'iðanleg sé — aðferð sú, er liann beitti nú, og sem bygðist á þeirri
sannreynd, að „hlutfallsskyldleikinn milli samleggs tveggja hliða þrí-
'>1 nings og mismunar þeirra er liinn sami og sá, sem liggur milli snertils
e Inings samleggs gagnstæðra horna þríhyrningsins og snertils helmings