Eimreiðin - 01.07.1946, Blaðsíða 28
172
PRÉDIKUN I HELYÍTI
EIMREIÐIN
m.
Fylgdarmaður minn, sem sýnilega var foringi mótsins, stökk
nú aftur upp á stóra steininn. Hann þakkaði „þessa ágætu ræðu“
og skýrði svo frá skemmtiatriðum dagsins. Bað hann afsökunar
á því, að einsöngvari, sem liafði lofað að koma, væri hamlaður
sökuin lasleika. Heyrði ég þá, að maður nokkur, sem sat nálægt
mér, hnippti í sessunaut sinn og sagði:
„Nú, hann liefur þá verið að skemmta sér í nótt, garmurinn.“
Og liinn drap höfði því til samþykkis, og báðir kýmdu þeir,
fullir skilnings á slíkum töfum.
Kom nú fram liópur af ungum og fallegum mönnum og sýndu
þeir frækni sína, afl og fimi í ýmsum þjálfuðum tilburðum. Var
Jiví fylgt af miklum áhuga, hver skaraði fram úr í liverri greiiL
en enginn virtist veita neina sérstaka athygli sjálfum lireyfinguiu
íþróttamannanna, og voru þær })ó stæltar og liáttbundnar og
fullar af lífi og krafti.
Næst birtust nokkrar ungar stúlkur og sungu. Virtust inér þær
fara með meinlausar klámvísur, J)ar sem reynt var að gefa eitt-
livað í skyn, sem ekki mætti segja fullum stöfum. Þær spiluðu
undir söng sinn á strengjahljóðfæri og voru ákaft liylltar, er þær
gengu burt.
Síðan liófst dansinn á stóra pallinum. Ég hef oft liaft ánægju
af að sjá ungt og fallegt fólk dansa saman, en mér fannst seiu
yndisþokki þeirrar fögru íjiróttar viðraðist fljótt af þessuiu
æskulýð, einkum eftir því sem oftar var farið inn í veitingatjaldið-
Ég leit að vísu aldrei þangað inn, en ég vissi að menn fóru Jiangað?
svo að Jieir gætu notið lífsins betur og gleðinnar.
Er ég hafði liorft á dansinn um stund, sá ég, að óliapp koiu
fyrir á pallinum. Einum herranna varð skyndilega illt, og kast-
aði hann upp. En sökum þrengslanna lenti spýjan á dansineý
hans og næstu dansendum. Heyrði ég þá, að sagt var liárri röddu:
„Helvítis dóninn þinn“. Síðan urðu nokkrar stympingar,
óhappamaðurinn var borinn burt, því að liann mun ekki hafa
getað staðið, eftir að liann missti stuðning sinn. Var hann færður
út í móa og lagður þar og breitt yfir liann. Svo var haldið áfraiu
að dansa.
Ég livarflaði nú augunum víðar um. Á einum stað voru seldir