Eimreiðin - 01.07.1946, Blaðsíða 87
eimreiðin
FRA LANDAMÆRUNUM
231
uni að láta hann á frú Perry. Ég
lét hringinn á græðifingur hægri
handar minnar, og var Margarette
nú látin koma inn. Hún neri sam-
an höndum í ákafa og dr. Cannon
snart vinstri hönd hennar með
hægri hendi sinni. Margarette
gerði þá sveiflu með hægri hend-
inni í áttina til mín og bað mig
að taka ofan hringinn og færði frú
Weatheread. Samskonar tilraun
var endurtekin með úr frá ungfrú
Myers, sem lagt var á arinhilluna.
í*að sem vakti mesta furðu við
báðar þessar tilraunir var, hve
Margarette var hiklaus og fljót
að finna og staðgreina hlutina.
Rhonda var því næst beðin að
ganga út, sem hún gerði, og bað
i>ún frú Perry að koma með sér.
Meðan hún var í burtu, sagði dr.
Cannon fundarmönnum, að hann
hefði lagt fyrir Rhondu í hugan-
um að koma með styttu af kín-
versku goði, sem stæði í einu af
svefnherbergjunum .— og þetta
gerði Rhonda fljótt og hiklaust.
Svipuð tilraun var gerð strax á
eftir, en nú var það koddi úr einu
svefnherbergjanna, sem Rhonda
var látin sækja, og framkvæmdi
hún þetta fljótt og vel.
Dr. Cannon sagði okkur því næst
að binda fyrir augun á sér og
sýndi okkur hvernig ætti að gera
það. Tvöfalt lag af bómull var
sett yfir hvort auga og síðan
óundið fyrir með fjórföldu hand-
lilaaði. Við skoðuðum nákvæmlega
bsði bómullina og handklæðið til
þess að ganga úr skugga um, að
engir gallar væru á, og við erum
alveg viss um, að engin myrkvun
gat verið öruggari en þessi. Þá
það dr. Cannon okkur um að fá sér
eitthvað að lesa, og við fengum
honum eintak af „Daily Mirror“
°g gáfum honum um leið til kynna
hvar við vildum láta hann lesa
UPP úr blaðinu, með því að láta
hann snerta þann stað. Hann las
upp nákvæmlega orði til orðs og
lýsti jafnframt mynd, sem grein-
inni fylgdi. Hr. A. de Vane
Smythe valdi því næst lestrarefni
og Parkin liðsforingi mynd af
brúðkaupsfólki, og var þetta
hvorttveggja lesið og útskýrt í
öllum smáhtriðum — af dr.
Cannon.
Eftir þetta dáleiddi dr. Cannon
Rhondu, og var síðan bundið fyrir
augu hennar á sama hátt og áð-
ur er lýst. Síðan var henni fengið
lestrarefni, hr. Allwork fékk
henni vegabréfið sitt, ungfrú
Mothersole fékk henni heilbrigðis-
vottorð og Parkin liðsforingi fékk
henni vasabókina sína. Þetta var
allt lesið rétt og skilmerkilega og
því, sem var í vasabókinni lýst
nákvæmlega, en þar var meðal
annars ljósmynd af ýmsu fólki á
brú einni. Eftir þetta vorum við
öil í einu látin styðja höndunum
á borð fyrir framan Rhondu, með
bundið fyrir augun eins og áður,
og hún benti rétt á hvert okkar
um sig, án þess að spyrja nokkurs
eða snerta nokkurt okkar.
Rhonda bauðst síðan til að
svara spurningum, hver fundar-
manna spurði tveggja, og var
þessi prófraun bæði furðuleg og
fjölbreytileg.
Lokatilraunin á þessum fundi
var fólgin í líkaman hluta. Rhonda
var enn í dáleiðsluástandi og með
bundið fyrir augun. Var nú gert
dimmt í herberginu og okkur sagt
að hvílast, sitja grafkyrr og anda
hægt og djúpt án þess að kross-
leggja fætur. Það ríkti alger
þögn, en svo fór Rhonda að
kvarta um kulda og bað um að
binda á sér hendurnar. Við sáum
að þetta var gert við ljós frá smá-
lampa, og létt, litótt kápa var
lögð yfir herðar hennar. Eftir dá-
litla stund hrópaði Rhonda upp