Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Page 27

Eimreiðin - 01.04.1954, Page 27
eimreiðin RÍKI OG KIRKJA 99 skoðunum frjálslyndra manna, sem oft eru raddir uppi um. Með öðrum orðum: Með þessum hætti er vissulega miklu auð- veldara, ef vilji væri til, að koma fram nauðsynlegum endur- bótum. Á alþingi fslendinga er einnig hægt að gera gangskör að því með einföldu lagaboði að losa ríkið við kirkjuna, eða kirkjuna við ríkið, með hvaða kostum sem væri, ef atkvæðaafl er fyrir hendi til þess, — og það væri formlega hægt að gera það á einu alþingi, hvort sem hún yrði leyst út með ríkuleg- um heimanmundi eða kastað út á gaddinn. En þar setur 79. gr. stjskr., 2. málsgr., þær skorður við fullnaði verksins, að leggja skal málið — ef ætlað er að breyta sjálfri kirkjuskipaninni — síðan undir þjóðaratkvæði, til samþykkis eða synjunar, og má þá auðna ráða. Að vísu er ekki gerandi ráð fyrir neinu brauki nu sem stendur, enda munu engar ráðagerðir frammi um neitt þvílíkt með þjóðinni eða fulltrúum hennar. Hins er þó eigi að dyljast, að ýmis sólarmerki benda eins vel til, að sólarlitlir dagar geti verið í vændum í kirkjumálum landsins, sinnuleysi almenn- lngs í kristnihaldi og afskiptaleysi hinna ráðandi manna eða stjórn- srvalda um aðkallandi hagsmunamál „hinnar íslenzku þjóð- kirkju“. En auðsætt er, að eigi má svo til ganga, ef vel á að fara. En kirkjan er hér í nokkurskonar úlfakreppu. — Það er nú viðurkennt víðast hvar, þar sem svo er ástatt í kirkjumálum sem hjá oss, eða þar sem „kirkjan er háð ríkinu“, og þá einkanlega a Norðurlöndum, að grundvöllur þess, að eðlileg og nauðsyn- ^eg samvinna þessara aðila blessist, verður að vera, að á milli þeirra ríki fullt trúnaSartraust og full velvild, laust við allan pólitískan flokksklikuskap, sem nú er hættulegasta meinið i öll- um lýðræðislöndum, sem þó að öðru leyti vilja telja sig laus við einræðistilhneiging. Vilji til þess að ráða bót á öllu því, sem af- ^ga fer að beztu manna yfirsýn, verSur að vera fyrir hendi °g þróast hjá valdhöfum, annars vegar, og næg sanngirni í kvörtunum og kröfum kirkjunnar hins vegar. Þar verður ein- samvinna að eiga sér stað, einnig með glöggum skilningi þess, að margs er að gæta og margt að annast í þjóðfélögunum, er eigi snertir kirkjuna sérstaklega og hennar mál. Fjárhagsgeta þjóðarinnar, ríkisins, skammtar af; þess vegna er vart að vænta geysi-fjárhæða hverju sinni til einstakra framkvæmda. En eins

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.