Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Blaðsíða 65

Eimreiðin - 01.04.1954, Blaðsíða 65
EIMREIÐIN ÖXIN RIMMUGÝGUR 137 sem er stórum lélegra vopn en tvíeggjað sverð, sem þá var Raerfellt í hvers manns höndum. Hvað gæti höfundi Njálu gengið til þess að lofa þá ekki Skarphéðni að bera gott sverð, eins og margar hetjur gerðu í þá tíð, — og unnu stórvirki með þeim? Nei, öxin var því aðeins nothæf miklum vígamanni, að hún væri Enikil, og ekki síðri algengum vopnum. En hvað kom þá til, ef öxi þessi var öðrum vopnum betri, að vigamenn vopnuðust þeim ekki almennt, kynni einhver að spyrja. Mér virðist það benda eindregið til þess, að vopnið hafi verið fágætt. Ekki geta sögur um vopnasmíði hér svo neinu nemi, að minnsta kosti er ferill allra kjörvopna, sem sögumar geta um, rakinn utan úr löndum. Enda þykja líkur til þess, að vopn hafi verið smíðuð í allstórum stíl erlendis, í sérstökum smiðjum og Sengið þaðan víðs vegar kaupum og sölum, auk þess sem menn íengu í hernaði. Þá er þess getið, að vopn þóttu kosta-gjafir og voru jafnvel send þannig frændum og vinum milli landa. Þrátt fyrir þetta er allt í gleymsku grafið um uppruna eða hingaðkomu Rimmugýgar, því að Njála, sem þó er eina heimild- ln> þegir alveg um það. En því miður gefur hún mjög ófullkomnar upplýsingar um fieira, svo að freistandi er að láta sér koma til hugar, að í hana vanti allstóran kafla. Hvað kemur til annars, að Njálssaga getur íyrst um Njál sem roskinn mann, er á harðfullorðin börn? Hitt var þó venja, að byrja á ætt mannsins og uppvexti, utanferðum °8 framaverkum, ef til voru, kvonbænum og hvemig maðurinn komst að bólfestu sinni, o. s. frv. Er það sennilegt, að Skarphéðinn, sem alltaf var talinn fyrir bræðrum sínum, bæði um garpskap og fyrirhyggju, hefði setið eftir af þeim, þegar þeir leituðu sér frama erlendis, sem þótti íafn sjálfsagt þá öllum þeim, sem teljast vildu menn með mönn- Um> eins og skólaganga nú? En eins og ég hef þegar vikið að, eru margir möguleikar fyrir Því, að Skarphéðinn gæti eignazt ágætt vopn, hvort sem hann befur sjálfur farið erlendis eða ekki. Hvað er þá svo ósennilegt við lýsinguna á hinni miklu og víglegu öxi hans, og hver getur sannað nú, að slík öxi hafi ekki verið til um þetta leyti? í danskri mannkynssögu (eftir Ludvig Schmidt, útg. 1922), sem lengi var kennd hér við miðskólana, er mynd af Engilsaxa með háskefta, snaghymda og mikla öxi, sem svarar að mestu til þeirr- ar hugmyndar, sem Njála gefur um Rimmugýgi. — Þó henni sé hvergi lýst sjálfri, er all-ítarlega lýst þeim vígum, sem með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.