Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Blaðsíða 72

Eimreiðin - 01.04.1954, Blaðsíða 72
144 NORN eimreiðiN Kurino var stúlka, sem átti auðvelt með að reka alla heilbrigða skynsemi á dyr í þessu efni sem öðrum og sniðganga allar höml- ur, sem skyldurækni, siðgæði og skírlífi leggja á menn. Hún leit á hjónaband sitt sem tæki til að hefna sín á rússneska sam- veldinu! Hún sá ekkert athugavert eða heimskulegt við þetta sjónarmið. Því miður var ég of veikur fyrir til þess að hirta hana fyrir heimskuna og hviklyndið. Heillaður af sætleik eitraðra loforða hennar og hátíðlegra yfirlýsinga lét ég mér sæma að gerast þessa nótt níðingur, þess albúinn að bíða í eftirvæntingu eftir því, að Masa Kurino skildi við Kiyama. Hinar sífelldu endurtekningar hennar, „það ert þú, sem ég elska“, veittu mér nýja von. Ég þurfti ekki annað en bíða. Hún mundi áreiðanlega koma til mín aftur. En þegar frá leið, breyttist þessi von mín í örvæntingu. Masa Kurino var sífellt í huga mér, og öll þessi umhugsun svipti mig sjálfvirðingu, öryggi og sjálfsstjórn. Ég lá heila dagana út og hugsaði um það eitt, hvað ég ætti að gera við minn slitna og auðvirðilega skrokk. Ég ákvað, að ég skyldi aldrei hitta stúlkuna aftur. Hún mundi gera út af við mig. Jafnvel þó að hún kæmi til mín aftur, gerði ég alls ekki ráð fyrir, að ég mætti treysta henni. Hún mundi áreiðanlega einhvern góðan veðurdag renna út úr höndunum á mér eins og fljótandi vökvi. Svo var það dag nokkurn, að Masa Kurino kom óvænt inn til mín. Var hún komin til að færa mér gleði eða til að tortíma mér? Hún var í grárri vorkápu og með vönd úr bleikrauðum blómum í fanginu. Hún hafði rýrnað mjög um herðarnar, og hún var með dökka bauga undir augunum. „Hvað gengur að þér?“ sagði ég. „Þú ert orðin svo horuð.“ „Það gengur ekkert að mér,“ svaraði Masa í sínum venjulega gæluróm. „En þú lítur út fyrir að vera veik.“ „Ég er ekki veik. Ég er ófrísk.“ „Já, einmitt það. Til hamingju!" „Það er svo sem engin ástæða til að vera að óska mér sérstak- lega til hamingju með það.“ „Jæja, gott og vel----------, en hvenær ætlarðu að skilja við Kiyama?“ „Ég býst alls ekki við að skilja við hann,“ sagði Masa og sneri upp á sig. „Þú veizt, að Kiyama elskar mig. Hann segist elska mig alveg óstjórnlega. Þegar ég bryddi upp á því héma um daginn’
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.