Eimreiðin - 01.04.1954, Blaðsíða 14
86
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMRF.IÐIN
móðir allra landsins barna, er með því vegsömuð á táknrænan
hátt, um leið og hún með móðurlegum myndugleik ávarpar þau
og hvetur til dáða. Nú stendur hún á vegamótum, með fortíðina
að baki, ríka af minningum, ríka af reynslu langrar baráttu, ríka
af þjóðlegum verðmætum, sem ekki mega glatast. í hafróti bylt-
inga og breytinga í efnahagsmálum, atvinnuháttum og tæknileg-
um efnum, stendur hún og horfir fram á veginn, eftir áratugs
feril vors unga lýðveldis. Vér trúum því, að göfugur arfur frá liðn-
um kynslóðum, reynsla þeirra, mótuð í eldvígslu þrauta og baráttu,
megni að herða hana áfram til dáða, að hún haldi sæmd sinni
og sjálfsvirðingu, hvað sem á dynur, — „sólarbundin, fleygifrjáls,
fléttuð geisla um öxl og háls“, með faldinn hreinan yfir háu enni.
Með þá trú að leiöarljósi býst þjóðin til göngunnar næsta ára-
tuginn, að liðnum hinum fyrstu tíu lýðveldisárum, og heldur henni
áfram um ókomin ár og aldir.
Kirkja íslands stendur á vegamótum í sólmánuði sumarsins,
svipað og íslenzka lýðveldið, þar sem nýr biskup hefur nú tekið
við störfum af hinum ástsæla látna biskupi Sigurgeiri Sigurðs-
syni, og fór vígsla hins nýja biskups, Ásmundar Guðmundssonar,
áður prófessors í guðfræði við Háskóla íslands, fram sunnudag-
inn 20. júní í dómkirkjunni í Reykjavík, að við-
Nýr hiskup stöddu miklu fjölmenni. Dr. theol. Bjarni Jóns-
yfir íslandi son v'Sslut>iskup framkvæmdi vígsluna, en dr.
Magnús Jónsson lýsti vígslu. Biskupsembættið
hefur jafnan verið mikilvægt og veglegt, enda jafngamalt kristn-
inni, og hér á landi hafa í því embætti starfað margir afreks-
menn allt frá dögum ísleifs biskups og fram á vora daga. Undir
engum einum manni er það meira komið en eftirlitsmanni kirkj-
unnar, hvort hún rækir sitt göfuga hlutverk eins og vera ber.
Megi koma hins nýja biskups í embætti boða vaxandi birtu og
bjartari, andlegri lífsviðhorf í íslenzku kirkjulífi og þjóðlífi
á komandi árum. Með þá ósk í huga hyllir þjóðin hinn nýja
biskup vorn og biður honum blessunar í starfi.