Eimreiðin - 01.04.1954, Blaðsíða 82
eimreiðin
FRlMERKJABÁLKUR
154
«3t3*3t3t3»3»3*3t3*3»3t3*3*3*3*3»3*3*3*3*3*3*3l
(3[rtwcrlíjaíntlluu*
•ctetctctctctctetctctctctctctctctctctctetctctctí
Aldarafmœli
sœnskra frímerkja.
Hinn 1. júlí 1955 eru liðin 100
ár síðan farið var að nota frímerki
í Svíþjóð. Til minningar um þetta
aldarafmæli verða gefin út ný frí-
merki þar í landi, og auk þess á
að halda alþjóðlega frímerkja-
sýningu í listahöll einni í Stokk-
hólmi. Formaður sýningarnefndar-
innar er Swartling, aðalforstjóri
sænskra póstmála.
Frímerkjasöfnun
og læknisfrœ'Si.
Margvíslegar eru þær upplýsing-
ar, sem hægt er að afla sér af xrí-
merkjum. Landafræði, saga, ætt-
fræði, mannfræði, náttúrufræði og
flestar aðrar fræðigreinar eiga sér
einhvers staðar í heiminum frí-
merki að fræðslugjafa. Jafnvel í
læknisfræði má nema nokkuð af
frímerkjum, þó að ótrúlegt sé. Eitt
dæmið um þetta eru þrjú frímerki,
sem póststjórnin í Monaco hefur
nýlega gefið út. Á frímerkjunum
standa orðin: „Decouverte de
l’Anaphylaxie", sem útleggst: Ana-
fylaxían uppgötvuð. En hvað tákn-
ar þá þessi „anafylaxía”? Hún
táknar ofnæmi gagnvart vissum
efnum, einkum eggjahvítuefnum.
Sumar blóðvatnsaðgerðir geta
valdið sjúkdómum, sé líkaminn
veikur fyrir, og þá er talað um
„anafylaktiskt áfall“. Þessi upp-
götvun í læknisfræðinni var gerð
árið 1902, árið eftir að furstinn af
Monaco, Albert I., hafði gert út
hafrannsóknarleiðangur til Azor-
eyja og Cap Verde, en furstinn var
mikill haf- og fiskifræðingur. Með-
al vísindamanna í þessari för voru
tveir franskir sérfræðingar, líf'
fræðingurinn Paul Jules Portier og
gerlafræðingurinn Charles R-
Richet, sem var læknir og hlaut
síðar Nobelsvei’ðlaun í læknisfræði.
Á ferð þessari uppgötvuðu þeir, að
eitrið, sem marglytturnar hafa í
gripöngum sínum og lama með
bráð sína, er eins konar eggja-
hvítuefni, sem veldur vöðva-
krampa. Fyrirbrigðið fékk heitið
„anafylaxia" á vísindamáli. Frí-
merkin frá Monaco eru mjög lit-
fögur og skrautleg. Á þeim sést
snekkjan, sem furstinn var á í leið-
angrinum, öðru megin við hana
mynd af marglyttu, en hinu megin
höfuð þeirra þriggja vísindamanna,
sem uppgötvunina gerðu.
Dýr frímerki.
Dýrasta frímerki, sem til er, mun
vera eins sents frímerki frá Brezku
Guiana, sem út var gefið árið 1856.
Það hefur verið metið á 100.000
dollara, eða sem svarar rúml. einni
milljón og sex hundruð þúsund ís-
lenzkra króna.
Fágætasta frímerki, sem út hef-
ur verið gefið i Evrópu, er talið
að vera sænskt frímerki frá 1855
með blágráum lit i stað guls, og er
verðmæti þess talið um 650 þúsund
krónur.
Mesti frímerkjasafnari
heimsins.
Mesti frímerkjasafnari, sem upP’
hefur verið, var ítalski greifinn
Philippe von Ferrary, sonur her-
togans af Galliera. Ferrary lézt
árið 1917. Hann arfleiddi Póstsafn-
ið í Berlín að hinu dýrmæta fn-