Eimreiðin - 01.04.1954, Page 29
eimreibin
RlKI OG KIRKJA
101
Af þessu má nú greinilega marka, aS Kirkjuráðið er stofnun,
sem ætlað hefur verið að láta nokkuð til sín taka í áttina til
aukins valds í kirkjunnar málum, þótt hamlað gæti þessu ólyst
su, sem kynni að vera hjá hinum verzlegu stjórnarvöldimi tii
slíki'a tiltekta, og yrði þá litt rönd við reist.
Er þá að lokum komið að þvi fyrirtæki, sem stendur oss harla
Uærri á þessum tímum og ætlað var til þess að verða öflugt tæki
tii uppörvunar, hvatningar og nytsamra úrræða fyrir kirkju
°g kristni þjóðarinnar, sem sé Hinum almennu kirkjufundum,
þar sem áhugasamir fulltrúar frá fólkinu sjálfu og einstaklingar
Ur hópi klerka kæmu saman undir vissu skipulagi til samráðs
°g aðgerða eftir þvi, sem efni gætu staðið til. Má nú kalla fundi
þessa fasta stofnun, með 20 ára reynslu að baki. — Þessir lands-
íundir hlutu nafnið „hinir almennu", til þess hvors tveggja að
gefa til kynna, að frá öllum hálfum þjóðarheildarinnar væru
uienn til þeirra kvaddir, eftir reglulegu kjöri eða tilvísan, og eins
til þess að bert yrði, að þar átti engin trúarbragðatogstreita að
ráða; kristnir menn í kirkju landsins áttu að eiga þar jafnan
aðgang að, ef þeir fullnægðu settum reglum; og þá, sem vildu
smna hinu uppbyggjandi starfi, mátti ekki aðgreina eftir sauða-
°g hafra-reglunni, sem ekki heldur er á mannanna valdi. Til-
gangurinn var í upphafi og alla tíð fram, að sameina, en ekki
sundurdreifa, enda þótt ekki væru allir á sömu skoðun um
allt, því að með því eina móti gat þessari samkundu orðið
lífvænt til frambúðar. — Þeir, sem þar koma til starfa, verða
að ástunda í einlægni og bróðerni að vinna að þeim velferðar-
mólum, sem á þessu sviði i sannleika biða liðsinnis góðra manna
í íslenzku kirkjunni. Þetta á við um alla — og gerir þá lítt, þótt
tnenn greini að einhverju leyti á, í því þarf engin óhollusta að
vera fólgin, og í vissum skilningi mætti segja: Þvert á móti —
það gæti einmitt markað meira líf og betri skilning á verkefninu.
Hinir almennu kirkjufundir voru með vissu tilraun, sú fyrsta,
sem gerð hefur verið hér á landi, til þess — eins og tekið hefur
verið fram — að fá til samstarfs menn úr öllum áttum með
þjóðinnþsem allir hugsandi menn um þessi efni munu telja fulla
nauðsyn á. En fundunum var og ætlað, með þroska þeirra, að
verða vel virtur vísir eða frumdrög að valdameiri samkomu, ef vel
tækist til, sem ásamt Kirkjuráðinu gæti með tíð og tíma vaxið