Eimreiðin - 01.04.1954, Qupperneq 30
102
RlKI OG KIRKJA
EIMHEIBIN
upp í reglulegt kirkjuþing, er síðan hlyti löggilding til meiri
ráða um örlög kirkjunnar en nú er fyrir hendi. — TVisvar hafa
verið samin og komið fram frumvörp um svo nefnt Kirkjuþing
fyrir hina íslenzku þjóðkirkju, fyrst 1906 svo sem á pappírnum,
og síðara skiptið á alþingi 1941, en eigi var því ætlað annað
en ráðgefandi verksvið, svo að litið hefði það getað bætt úr skák,
þótt hugmyndin væri góðra gjalda verð. Það náði ekki samþykki,
og hefur því síðan ekki verið hreyft. Og enginn veit nú, hvenær
tök myndu verða á að fremja slíkt með nokkurri alvöru, en ýmis-
legt mætti væntanlega gera til þess að undirbúa jarðveg þjóð-
lífsins fyrir þess konar stofnun, meðal annars með þvi að sýna
í verki lífsmátt Hinna almennu kirkjufunda.
Islenzka kirkjan á margar loflegar minningar. En í nútíman-
um þarf meira til, ef allt á ekki að verða fyrir gýg. Hún á eimiig
nú marga góða liðsmenn. En kirkja landsins verður á hverri
tíð að eflast að vizku og náð, fyrir atbeina allra, hárra og lágra,
er með umráð hennar fara. Hún verður að afla sér í hvívetna
fyllsta álits meðal allra landsmanna, hvaða stefnum sem þeir
annars kunna að fylgja í dagsins málum, og þjónar hennar
allir verða að kappkosta að vera og verða ávallt dyggir í starfi
og ekki sízt til fyrirmyndar lýðnum, í kenningu sinni og lífi,
í siðferði og sjálfsaga. Og í því efni verður yfirstjórn kirkjunnar
að sýna ótvíræða og óbilandi röggsemi, svo sem hún einnig
vafalaust hlýtur að hafa vilja til. Mun þá kirkjan sýna sig
verSuga fulls trausts, og mœtti hún þái einnig aS vonum verSa
„sett yfir meira“.
Eftirmáli.
Til fyllri skýringar á hinni nýju löggjöf um aðstoð við kirkju-
byggingar, sem getið hefur verið í grein þessari, má taka þetta
fram: Lögin, sem eru nr. 43, frá 14. apríl 1954, heita fullu nafm
Lög um kirkjubyggingarsjóð, og ganga þau í gildi 1. janúar
1955. Aðeins kirkjubyggingar í þjóðkirkjunni koma hér til
greina. — Rikið leggur til sjóðsins hálfa milljón króna á ári
í 20 ár. Þriggja manna stjórn er fyrir sjóðnum: Biskup, sem
er formaður, og tveir kjörnir af prestastefnunni (til þriggja ára
í senn). Teikningar að kirkjubyggingum eða endurbót eldri
kirkna metur önnur þriggja manna nefnd.