Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Page 35

Eimreiðin - 01.04.1954, Page 35
eimreiðin BRÆÐURNIR 107 Hvílíkur leikari! hugsaði Eiríkur. En í þessum leik ætla ég aUs ekki að vera þátttakandi. Húsmóðirin kom inn með kaffibakkann, og án þess að líta upp ur bókinni, dýfði Fabian sínum tveim kringlum niður í kaffið og borðaði þær. Þá fannst Eiríki sem ormur vefðist fast um hjarta sér, og þótt bróðir hans væri óbreyttur, þá hefði sjálfur hann samt orðið að allt öðrum manni. —• Horfðu á matinn, meðan þú borðar! sagði hann. Fabian leit upp, en augnatillit hans var annarlegt, og svo hélt hann áfram uppteknum hætti. Eiríkur snerti ekki við morgunverðinum, en hann tíndi saman bækurnar sínar eina af annari, þar sem þær lágu á borðinu, og þegar hann hafði fyllt fang sitt, fleygði hann þeim á ringulreið í rúmið. ■— Fabian, sagði hann, finnst þér ekki þungbært að vera sljór °g seinn að skilja? ■— Þú ert ruglaður í dag, anzaði Fabian án þess að láta truflast. — Ef ég hefði orðið að stagla eins og þú, held ég hefði heldur snúið heim aftur og grafið skurði, eins og pabbi hefur gert alla sína ævi. An þess að hafa neitt illt í hyggju, ýtti Fabian frá sér bollan- um og studdi fingrinum á línuna, þar sem hann hafði orðið að hætta við lesturinn, en Eiríkur vildi ekki láta hann sleppa. — Rifjaðirðu líka upp fyrir þér, meðan þú varst úti að ganga? — Rif jaði upp ... það held ég varla, en ég gerði þeim mun meira í nótt til þess að eiga algerlega frjálsa stund á eftir. Hann gerði annað merki í bókinni og varð hugsi. ■— Ég held ég verði að hætta þessum lestri, þó að afleitt sé. Hann útheimtir tíma, og ég er of fátækur ... svo er mér líka illt í augunum. Ef Eiríkur hefði þorað, mundi hann hafa barið hann, en enn M treystist hann ekki til að vinna bug á þeirri hugmynd, að bróðir hans væri æðri forsjón, sem hann hefði ekki leyfi til að rísa gegn. Einmitt þess vegna óx með honum bæði hreysti og hugrekki, þverúð og metnaður, knúin af innri ólgu. Allan daginn dvaldist hann heima, og þegar bróðir hans næsta m°rgun á mínútunni sex skreiddist hljóðlega fram úr rúminu, ^ór Eiríkur líka á fætur. Þeir stóðu andspænis hvor öðrum á skyrtunni og einblíndu fram fyrir sig. Bróðir hans þagði, og þegar

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.