Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Síða 57

Eimreiðin - 01.04.1954, Síða 57
EIMREIÐIN ARABISKAR BÖKMENNTIR 129 varðveizt svo að segja óbreytt frá elztu tímum og fram á vora daga. Hvert erindi skiptist venjulega í tvær jafnar ljóðlínur, sem standa í hljóðstöfum eða ríma saman. Hefst hver ríma á nokkurs konar mansöng. í mansöngnum lýsir skáldið sjálfum sér og sínum tilfinningum. Venjulega er hann þá á ferðalagi á úlfalda sínum °g margt manna í för með honum. Kveður hann þá um heimili sitt, ættbálk sinn, fegurð náttúrunnar, liðnar lystisemdir úr lífi sínu og ástmey sína. En eftir að mansögnum lýkur, hefst hið eiginlega efni rímnanna: veiðiför, hemaður, hetjudáðir ættkvísl- anna o. s. frv. Sum þessi ljóð eru sögulegs efnis, önnur ádeilur, háðkvæði eða fjalla um blóðhefndir og bardaga. Þessi fornu arabisku Ijóð voru kveðin undir mismunandi háttum og svara einnig í því efni til íslenzku rímnanna. Hin helga bók Múhameðstrúarmanna, Kóraninn (koran = lesn- ing),* veldur aldahvörfum í bókmenntum Araba, og með gildis- töku hennar hefst nýtt tímabil í menningarsögu þeirra. Á árunum 044-—56, á stjómarári þriðja kalífans af Uthman-ætt, var Kóran- inn löggiltur sem trúarbók, en ekki var endanlega lokið við að ganga frá texta hennar fyrr en nálega þrem öldum síðar, eða árið 933. Það er bókmenntalegu gildi Kóransins að þakka, að hinar mörgu mállýzkur arabiskra þjóða hafa aldrei klofnað í mörg Htmál, líkt og latínan klofnaði í rómönsku málin, heldur hefur rttmál Kóransins orðið ritmál hinna arabisku þjóða, enda er hann sú bók, sem allir Múhameðstrúarmenn, sem á annað borð eru iæsir, læra að lesa. Ýmsar hugmyndir í Kóranum eiga rót sína að rekja til eldri trúarbragða Arabaþjóða, svo sem lýsingar hans a Paradís. Hitt er þá einnig jafn augljóst, að Múhameð hefur °rðið fyrir áhrifum bæði frá kristnum mönnum og Gyðingum, °g gætir þess hvors tveggja í Kóraninum. Nú orðið neita því fáir, að Kóraninn sé merkileg bók, þrungin spámannlegri andagift, þrátt fyrir ýmsar takmarkanir. Hann hefur verið þýddur á mörg Evrópumál, og áhrif frá honum má finna í bókmenntum margra Þjóða, svo sem Englendinga, Þjóðverja, Frakka, Hollendinga, Itala °g Spánverja. Það var Skotinn Thomas Carlyle, sem manna bezt út- rýmdi þeirri hugmynd, að Múhameð hefði ekki verið annað en * Kóran, dregið af orðinu qara’a, þ. e. að lesa, mæla af munni fram. Kóran þýðir allt í senn: fyrirlestur, framsögn, upplestur og lestur. Sjá Pfank le Sage de Fontenay: Uppruni og áhrif Múhameðstrúar, Reykja- vik 1940, bls. 34. Bók þessi, sem er fyrirlestrar, er de Fontenay, fyrrv. Sendiherra Dana hér á iandi, flutti við Háskóla Islands veturinn 1939 ~~1940, gefur gott yfirlit um arabiska menningu og trúarbrögð. 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.