Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Side 64

Eimreiðin - 01.04.1954, Side 64
Öxin Rimmugýgur. Vnr öxin Rimmugýgur hvergi til, nema í hugarheimum? Það virðist vera nokkuð útbreidd skoðun meðal fornfræðinga, að öxin Rimmugýgur hafi aldrei verið til, að minnsta kosti ekki í líkingu við það, sem Njála gefur í skyn um hana. Ekki hef ég þó heyrt önnur rök færð fyrir þessu en þau, að engin slík öxi hafi fundizt í jörðu á íslandi, né annars staðar á Norðurlöndum. En afsannar það nokkuð tilveru hennar eins og henni var lýst? Gerir sagan sér ekki einmitt dálítið títt um hana, af því að hún hefur ekki verið venjulegt vopn á sinni tíð hér á landi? Hvað kemur til, að þá er ekki eins neitað tilveru atgeirs Gunnars á Hlíðarenda? Hann virðist þó ekki hafa verið venjulegt vopn heldur í þá tíð, og ekki er heldur kunnugt um, að hans líki hafi fundizt í jörðu. Þar virðist ástæðan auðsæ: Njála greinir ítarlega frá því, hvernig Gunnar eignaðist atgeirinn, og alþýðunni fannst það mikla vopn hæfa svo vel þeim glæsilega garpi, að hvorugt verður nefnt öðruvísi en hitt komi í hugann. Þegar Matthías Jochumsson semur „Útilegumenn" sína, lætur hann Skugga-Svein, þann mikla ægiskelfi, bera atgeir, og þykir það hæfa bezt þeim voða-manni. En þarna hleypur ofurlítil snurða á þráðinn. Þegar leikurinn er settur á svið, er Skugga-Sveinn látinn bera vopn, sem nefnt er „atgeir“, en er allt annað og óskylt vopn (býzönzk öxi) og samkvæmt lögun sinni meiri til sýnis en stórræða. Hefur þessi leiða meinloka jafnvel komizt í sjálft Þjóðleikhúsið. Listamaður sá, sem gjörði fornmannamyndirnar, sem seldar voru hér mikið á póstkortum á bilinu frá 1910—1930, var það snjallari að sýna Gunnar á Hlíðarenda með rétt gerðan atgeir. Er okkur það varla vansalaust að sýna meira kæruleysi og vanþekkingu um okkar eigin þjóðfræði heldur en útlendingar. Sama máli gegnir um Skarphéðin og Rimmugýgi sem Gunnar og atgeirinn, að hvorugt verður nefnt, án þess að hugsað sé til hins. Hætt er við, að mörgum þætti hetjan Skarphéðinn setja eitthvað ofan, ef endilega á að telja okkur trú um, að hann hafi haft að vopni axar-kjagg eitt, svo sem 2—3 þumlunga fyrir egg,

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.