Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Side 78

Eimreiðin - 01.04.1954, Side 78
150 LEIKLISTIN eimreiðiN við enn í dag: spurningin um það, hvort sjálfsblekkingin geri manninn farsælan eða ekki, hvort hægt sé að leita hamingju í lífslygi, hvort sé betra, nakinn sannleikurinn, hversu kaldur sem hann kann að vera, eða sjálfstálið. Málsvari sjálfsblekk- ingarinnar, Relling læknir, kveð- ur upp úr með þá skoðun, í leiknum, að um leið og maður sé sviptur sjálfsblekkingunni, sé hann sviptur hamingjunni. Gegn skoðun læknisins stendur Gregers Werle, sannleikspostul- inn með kröfuhörkuna og mis- kunnarlaust raunsæið, og bíður lægra hlut. Átök hans í þjón- ustu þess gerir sérgæðinginn og sjálfsblekkjandann Hjálmar Ek- dal að aumingja og dótturina, Heiðvígu litlu, að sjálfsmorð- ingja. Svo lýkur þeirri siðbót. Spurning Hamlets, um ,,að vera eða vera ekki“, leitar með óstjómlegum þunga á snillings- hug Ibsens, upp aftur og aftur í verkum hans, og hvílir á hon- um eins og farg. Hann glímir við geigvænleika hennar í leik- ritum eins og Brandi, Pétri Gaut og víðar, en í „Villiönd- inni“ verður sá, sem ákveður að vera sannur, bölvaldur og bani þeirra, sem hann ætlar að bjarga, en sá ósanni, táldregni og sjálfsblekkti lifir lífinu og sættir sig við tilveruna svo lengi sem blekkingin helzt. Um leið og hún hverfur, hrynur allt í rúst. Þessi myrka lífsskoðun skáldsins myndi gera list hans kalda og fráhrindandi, ef ekki kæmi til skilningur hans og samúð með vanmætti og ófull- komleika mannanna, svo að hvarvetna verður þess vart gegnum skrápinn, að hjartað er heitt, sem undir slær. En maður verður að hjálpa sér sjálfur. Aðrir geta það ekki. Hann verð- ur að reka sig á sjálfur og frelsa sig sjálfan. Þess vegna mistekst Werle siðbótin. Ibsen er hér sem oftar einstaklingshyggjumaður- inn par excellence. Björnson hefði leyst viðfangsefnið í „Villi- öndinni" öðruvísi. Hann fæst við svipað vandamál í sjónleik sín- um: „Gjaldþrotið". Þar er það Berent málfærslumaður, sem sviptir sjálfsblekkingunni af hrynjandi heimili gjaldþrota manns, með farsælum afleiðing- um fyrir alla aðila. í „Villiönd- inni“ skilur Ibsen við heimili í rúst, með því að láta svipta sjálfsblekkingunni af því. Björn- son getur með engu móti sætt sig við sjónarmið Rellings lækn- is. Þess vegna kemst hann svo að orði: „Gangurinn í „Villi- öndinni" byggist, svo sem kunn- ugt er, á því, að hinn fjórtán ára gamli píslarvottur trúi föð- ur sínum, sem naumast getur satt orð talað. Nú vitum vér, að enginn verður þess fljótar áskynja en börnin, hvort treysta má orðum þeirra, sem þau eru upp á komin. Frá því hún (þ- e- Heiðvíg) var fjögra ára, hefur hún vitað hvernig í öllu lá. Se nokkur í vafa, þarf ekki annað en minnast móðurinnar" (Eimr. IV, bls. 44—45). Það eru nú sjö- tíu ár síðan „Villiöndin varð til. Hún er því gamalt leikrit, en úrelt er það ekki. Því myndi enginn heilvita maður þora að

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.