Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Side 83

Eimreiðin - 01.04.1954, Side 83
ElMREIÐlN FRlMERKJABÁLKUR 155 merkjasafni sínu, en franska stjórnin lét selja það upp í hern- aðarskaðabætur. Frímerkjasafnar- ar úr öllum áttum flykktust til Parísar á uppboðið og gáfu fyrir írimerkin upphæð, sem svarar til Þrjátíu milljóna íslenzkra króna. er talið, að auðvelt væri að fá Þrefalda þessa upphæð fyrir safn Þetta. Tökkun frímerk ja. Allra frímerkja stærsta tökkun, Þeirra er út eru komin um víða veröid, hafa tyrknesk frímerki frá árinu 1871. Tökkunin er 5. Minnsta tökkun, sem kunnugt er um, er á 6 penca Viktoríu-frímerkjum frá árinu 1857. Á þeim er tökkunin 19. Frítnerki valda deilum. Erímerki hafa orðið fræg fyrir að valda deilum og jafnvel styrj- öldum. Árið 1900 kom út frimerki 1 Dominikanska lýðveldinu, með mynd af eyjunni Hispaniola, þar Sem landamæri lýðveidisins voru ^nd ná nokkuð inn á landsvæði, se«i Haiti-búar töldu sig eiga. ^etta olli langvinnum deilum milli tandanna, og stundum sló í bar- daea. Árið 1937, en þá höfðu deil- úrnar staðið í 36 ár, íóru Haiti- Þúar inn yfir landamærin, sem öeilt var um, og afleiðingin varð mannskæð orrusta. Féllu í henni 12500 Haiti-búar. Sættir komust ^oks á árið 1938. Árið 1930 gaf spánska stjórnin út frímerki til minningar um málar- ann Goya. Á frímerkinu var mynd af hinu fræga málverki listamanns- ms; Hertogafrúin af Alba nakin. Hmerkið varð mörgum hneyksl- únarhella, og mótmælum i-igndi yfir póststjórnina úr öllum áttum. Svisslendingur einn rökstuddi mót- m®li sína með því, að milljónir saklausra barna söfnuðu frímerkj- Um og því væri óhæfa að gefa út slíkt merki. Spanska stjórnin tók ekki mótmælin til greina, heldur lét hún prenta milljóna upplag af frimerkinu í viðbót og hafði af því góðar tekjur. Þetta eru aðeins tvö dæmi af fleirum um deilur, sem risið hafa út af frímerkjum. Fuglafrímerkjasöfnun sem sérgrein. Margir frímerkjasafnarar leggja stund á einhverja sérgrein, safna til dæmis aðeins írímerkjum frá vissum löndum, eða frímerkjum með vissum myndum. Þannig safna sumir þeim frímerkjum einum, sem eru með fuglamyndum. Á síð- astliðnu ári komu út óvenjulega mörg frímerki með slíkum mynd- um, og hefur því borið vel í veiði fyrir safnara þá, sem hafa þessi frímerki að sérgrein. Meðal þess- ara frímerkja eru að minnsta kosti tíu með friðardúfunni frægu, flest austan járntjaldsins, en af öðrum fuglum á nýjum frímerkjum má nefna þessa: Finnland hefur þyður og hegra á nýlega útgefnum frímerkjum, Kanada gæs og Curacao máf, sem sérfræðingar segja að sé harla líkur þeim íslenzka, en telja jafn- framt vafasamt, að sú máfategund sé til svo sunnarlega sem á Cura- cao. Tvö frimerki með uglu komu út á árinu 1953, annað í Þýzka- landi, en hitt í Bandaríkjunum. Önnur fuglafrímerki frá árinu 1953 eru frá Azoreyjunum, máfur, Belgiu, tvíhöfðaður örn, Brasilíu, bréfdúfa, Burma, goðsögulegur fugl, Frakklandi, örn, Guinea, pip- arfugl, Indónesíu, svonefndur sól- fugl úr goðsögnum Indónesíu-búa, Líbíu, strútur, Madagaskar, hegri, Mozambique, pelíkan, Hollandi, fugl á flugi, San Marino, fljúgandi svölur, Sómalilandi, strútur, og frá Túnis, örn.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.