Eimreiðin - 01.09.1964, Blaðsíða 99
Steinn Steinarr: KVÆÐASAFN OG
GREINAR. Forniáli og inngangur
eftir Kristján Karlsson. — Helgafell
1964.
„Þetta safn er heildarútgáfa á verk-
um Steins Steinarr, eins og naest var
komizt'', segir í upphafi formálans.
Vissulega munu aðdáendur Steins
Steinarr fagna því að fá hér í einni bók
óll Ijóð hans og laust mál, er liann lét
eftir sig. Margar af ljóðabókum hans
eru nú orðnar torfengnar, og í úrvali
kvæða hans, sem kom út árið 1956 er
að sjálfsögðu mikið undan dregið al
ljóðum, sem birtust upphaflega í bók-
unum, svo að þar er engan veginn
heildarmynd af skáldskap lians. En í
þessari nýju heildarútgáfu Helgafells
eru ljóðin birt eftir frumútgáfum bók-
anna, og í sömu röð og Ijóðabækurn-
ar komu út: Rauður loginn brann,
Ljóð, Spor i sandi, ierð án fyrirheits
og Timinn og vatnið.
„Ýmis kvœði" heitir næsti flokkur
og þar eru 19 kvæði, sem birtust aftan
við úrvalið úr prentuðum bókum
Steins 1956, en auk þess eru |tar um
20 kvæði, scnt ekki hafa áður komið í
bókum; nokkur hafa að vísu birzt í
blöðunt og tímaritum, en sum aldrei
verið prentuð. Og loks eru í heildarút-
gáfunni „Hlíðar-Jóns ríma“ og „Tin-
dátarnir".
Þessar viðbætur auka að sjálfsögðu
gildi þessa heildarsafns og gera það
nokkru forvitnilegra en ella. I sjálfu
sér munu þessi kvæði litlu bæta við
skáldhróður Steins Steinarr, en geta þó
orðið til að skerpa mynd hans. Eink-
um eru clztu kvæðin, sem tímasett eru,
athyglisverð heimild um það hvernig
hann hefur kveðið um það leyti, sem
liann hefur byrjað að yrkja, en í einu
viðtali segir hann, að hann hafi aldrei
ort nenia á árunum 1934—1943 —
„nema þá upp á grín“. En þarna eru
þó elztu kvæðin talin vera frá 1931 og
1932, og J>ar kemur hann Irain sem
rómantískur sveitapiltur, eilítið við-