Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Blaðsíða 45

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Blaðsíða 45
ÞORSTEINN HELGASON höfðu gagnrýnisraddir heyrst í áratugi. Þær héldu því fram að allt of margir hópar í bandarísku samfélagi hefðu „gleymst" eða verið sýndir í afskræmdu ljósi. Sögu þrælahaldsins þyrfti að endurskoða, myndina af indíánum að mála upp á nýtt. Félagssagnfræðingar bentu á marga hópa sem hefðu verið afskiptir. Gagnrýnendurnir náðu árangri, sumpart með fræðilegum rökum, sumpart fyrir tilstilli þrýstihópa. Sem lítið dæmi um það er að um 1970 var framhaldsskólum ekki stætt á því lengur að skylda nemendur í yfirlitsnámskeið, sem átti að skýra grunn samfélagsins, meðan það hét einfaldlega „Western Civilization" (Allardyce 1982). Sagnfræðingar og samtök þeirra tóku almennt undir hin nýju sjónarmið. Námskrár í sögu, sem tóku lit af fjölmenningarsjónarmiðunum, litu dagsins ljós, t.d. í New York-fylki 1991. Gagnrýnendum óx svo ásmegin að hefðarsinnar komust í vörn og ásökuðu gagnrýnendur um ofríki og ritskoðunartilburði. Þessar deilur voru veiga- mikill þáttur í stjórnmálalegri og hugmyndalegri umræðu sem gekk undir heitinu „menningarstríð" þar sem tókust á ýmis grundvallarviðhorf til samfélags, mann- gildis og menningar. í þessu andrúmslofti urðu „National Standards" til. Félags- og menningarsagan gáfu tóninn, fjölmenningarsjónarmið voru ráðandi og mikil áhersla var á gagnrýna hugsun og skapandi vinnubrögð. Eitt af markmiðunum var að stytta bilið milli nýrra rannsókna og fræðaviðhorfa og þess sem fram færi í skólunum. Landsnámskráin var úthrópuð þegar í stað, málið fékk á sig pólitískan lit og sumir reyndu að fella það inn í hefðbundna hægri-vinstri skiptingu í Bandaríkjun- um. Engu að síður höfðu svo margir komið að gerð hennar og hún var svo í takt við rannsóknir í sagnfræði og kröfur minnihlutahópa að lagt var út í björgunaraðgerðir til að starfið yrði ekki til einskis. Telja má til tíðinda að sættir skyldu takast um endurskoðun og málamiðlun. í maí 1996 var endurskoðun lokið. Fjöldi einstakl- inga, nokkrar stofnanir og tvær nefndir, önnur undir forystu þingmanns repú- blikana frá Minnesota, unnu að endurskoðun í samráði við upphaflega höfunda. Kennsludæmi og leiðbeiningar voru tekin úr viðmiðunum og höfð í sérstöku riti. Þar með var McCarthy aðeins nefndur tvisvar en ekki nítján sinnum eins og áður. George Washington fékk aukið vægi. Nokkur dæmi um breytingarnar gefa mynd af muninum. í kafla um sjálfstæðis- baráttu nýlendubúa eru nemendur beðnir samkvæmt upprunaútgáfunni að „greina manngerð og hlutverk herforingja, stjórnmálamanna og sendifulltrúa sem unnu að sigri Bandaríkjanna". Þetta verður í endurskoðun: Meta hernaðar- og stjórnmálaforystu George Washington í byltingarstríðinu. (Kanna mikilvægi einstaklings.) Þróunin í Bandaríkjunum var máluð eilítið bjartari litum í endurskoðuðu viðmið- unum, sums staðar vikið frá eindregnum túlkunum en sums staðar bætt við nýjum. I umfjöllun um vesturferðir er í báðum útgáfum talað um að fjallað skuli um: ... fjöldainnflutning eftir 1870 og hvernig ný félagsform, árekstrar og hugmyndir um pjóðareiningu próuðust samhliða aukinni menningarlegri sundurleitni. Þar átti að vinna ýmis verkefni samkvæmt eldri útgáfunni, m.a. að: ... greina milli „gamla" og „nýja" innflutningsins hvað varðar pjóðerni innflytj- enda, trú, tungu og upprunastað. (Greina fjölpætt orsakasamhengi.) 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.