Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Blaðsíða 27

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Blaðsíða 27
ELIN THORARENSEN fall með því að efla samstarf heimila og skóla (t.d. Berger 1995:6, Geiger 1992:314). Einnig hefur verið sýnt fram á jákvæð tengsl á milli mætinga foreldra á skólavið- burði og skólasóknar nemenda (Dornbuch og Ritter 1988:76). Að lokum má nefna að með einni rannsókn var sýnt fram á að samstarf heimila og framhaldsskóla skil- aði litlum árangri ef nemendur hefðu ekki kynnst slíku samstarfi í grunnskóla (Epstein 1995:707). Þannig virðist sem samstarf heimila og grunnskóla sé forsenda árangursríks samstarfs heimila og framhaldsskóla. Erlendar rannsóknir sýna jafnframt að meirihluti nemenda, foreldra og kennara er hlynntur samstarfi á öllum skólastigum og telur það bæta skólastarf og stuðla að auknum námsárangri (Epstein 1995:703). Ekki er hægt að heimfæra þessar niður- stöður beint á íslenskar aðstæður og er því forvitnilegt að skoða viðhorf þessara aðila til samstarfs heimila og framhaldsskóla hér á landi. SKILGREINING Á SAMSTARFI HEIMILA OG SKÓLA Ýmsir fræðimenn benda á að ekki er til ein rétt útfærsla á samstarfi heimila og skóla heldur þurfi hver skóli að móta samstarf sem hentar aðstæðum hans þannig að það mæti þörfum nemenda skólans, áhuga þeirra, getu og aldri (t.d. Berger 1995:10, Epstein 1995:703, Jesse 1997:2, Johansson og Orving 1993:162). Epstein (1995:704) hefur sett fram skilgreiningu á samstarfi heimila og skóla sem hefur hlotið almenna viðurkenningu, en að hennar mati eru til staðar sex sameiginlegir þættir samstarfs á öllum skólastigum. Þessir sex þættir eru: Foreldrahlutverk, samskipti, sjálfboða- vinna, heimavinna, ákvarðanataka og samvinna við samfélagið. Hver þáttur felur í sér margar ólíkar gerðir samskipta, viðfangsefni sem skólinn þarf að leysa til að ná að virkja alla foreldra og endurskilgreiningar á ýmsum þáttum samstarfs. Epstein (1995:707) segir að skilgreining hennar minni fólk á að öll samskipti heimila og skóla hafi ekki þau áhrif að bæta námsárangur heldur séu sum samskipti líklegri til að bæta til dæmis viðhorf og hegðun nemenda. Áhrif samstarfs fyrir nemendur, foreldra og kennara fara eftir því hvaða áherslur eru lagðar í samstarfinu og hver gæði þess eru. Samstarf verður best og áhrifaríkast þegar það spannar að einhverju leyti alla þessa sex þætti. Skilgreining Epstein á samstarfi var notuð sem viðmið við flokkun framhaldsskólanna í könnun á umfangi samstarfs. RANNSÓKNARAÐFERÐ Þátttakendur Könnunin sem hér um ræðir var tvíþætt þar sem annars vegar var skoðað hvernig samstarfi heimila og skóla var háttað í framhaldsskólum landsins veturinn 1995- 1996 og hins vegar var gerð könnun á viðhorfum fólks til slíks samstarfs haustið 1996. Til að kanna umfang samstarfsins var haft samband við skólastjóra og/eða námsráðgjafa í öllum framhaldsskólum landsins og þeir beðnir um að svara spurn- ingum um samstarf við foreldra nemenda í þeirra skóla. Svör bárust frá 21 skóla af 24 sem eru 87,5% skil. Notast var við upplýsingar frá skólunum til að flokka þá í 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.