Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 94
TÓBAKSREYKINGAR REYKVÍSKRA UNGMENNA ____________________________
NIÐURSTÖÐUR
Fylgni á milli frumbreytna var á bilinu 0,04-0,32. Hæst var hún á milli þrígildu
breytnanna samheldni og stjórnunar (r=0,32, p<0,01).
í Töflu 2 er að finna hlutfallslega skiptingu reykinga þátttakenda við 14 ára og
17 ára aldur eftir gildum frumbreytna. Reykingar ungmennanna við 17 ára aldur
miðast aðeins við þá sem ekki reyktu 14 ára gamlir.
Tafla 2
Hlutföll þátttakenda sem reykja 14 ára og 17 ára eftir uppeldisflokkum,
viðurkenningu og reykingum foreldra og vina
Reykingar 14 ára Reykingar 17 ára
N=248 sem ekki reyktu 14 ára, N=185
Fjöldi Reykir Reykir ekki Fjöldi Reykir Reykirekki
Uppeldisflokkar (%) (%) (%) (%)
Afskiptalausir 101 41 59 58 35 65
Skipandi 34 24 76 26 35 65
Eftirlátir 27 18 82 21 19 81
Leiðandi 86 7 93 80 12 88
Viðurkenning
Há 135 15 85 95 12 88
Lág 113 32 68 90 31 69
Reykingar foreldra
Reykja 135 36 64 99 32 68
Reykja ekki 113 13 87 86 13 87
Reykingar vina
Reykja 67 73 27 20 35 65
Reykja ekki 181 8 92 165 19 81
Tengsl við 14 ára aldur
Til þess að kanna hvort tengsl ofangreindra mælinga við reykingar unglinga við 14
ára aldur eru marktæk, þegar áhrifum annarra breytna er stjórnað, var notuð að-
hvarfsgreining hlutfalls. í aðhvarfsgreiningunni var leiðandi uppeldisflokkurinn not-
aður sem viðmiðunarflokkur og hinir uppeldisflokkamir þrír bornir saman við hann.
Engin samvirkni milli frumbreytna kom fram. Niðurstöður er að finna í Töflu 3.
Eins og sjá má í Töflu 3 eru unglingar sem búa við afskiptalausa, skipandi og
eftirláta uppeldishætti líklegri til að reykja 14 ára en þeir sem búa við leiðandi
uppeldishætti (eftirlátir á mörkum marktektar). Þessi tengsl koma fram hvort sem
vinir þeirra reykja eða ekki, hvort sem foreldri reykir eða ekki og óháð því hvort
92