Tímarit lögfræðinga - 01.06.1968, Side 59
stæði nýlendna1) og Yfirlýsing um afnám hvers konar
kynþáttamisréttis2). Sú fyrrnefnda var samþykkt á alls-
herjarþinginu 14. desember 1960, en hin siðari 20. nóv-
ember 1963. Um kynþáttamisrétti samþykkti allsherjar-
þingið sáttmála 21. desember 19653. Þessara samþykkta
er varla nokkru sinni getið í umræðum hér á landi um
mannréttindamál, en líklega halda talsmenn Afríkuríkja
vart svo ræðu um þessi efni eða um almenna stjórnmála-
þróun á alþjóðavettvangi, að þær beri ekki á góma.
Segja verður sem er, að fyrir menn frá Vesturlöndum
er næsta erfitt að finna rökrétt samhengi í viðhorfum
valdamanna í hinum nýju rikjum til mannréttinda. Þeir
virðast leggja allt annað mat á skyldur annarra en sínar
eigin skyldur, og vantar mikið á, að í löndum þeirra séu
virt sum frumstæðustu réttindi einstaklinga. Ekki er lík-
legt, að til veðrabrigða dragi á næstunni í þessum efnum.
Erfiðleikarnir í hinum ungu ríkjum eru gífurlegir, og
ekki er unnt að segja, að bjart sé þar framundan. Vald-
hafarnir eiga við vandamál að etja, sem virðast næstum
óleysanleg. Skilningur á því er þó ekki sama og vissa
um, að mannréttindi eigi ekki að vera betur virt og
tryggð en nú er.
Stundum er það svo, að engu er líkara en við hér á
Islandi teljum, að mannréttindi séu útrætt mál á okkar
landi, þau þurfi aðeins að bæta hjá öðrum. Þó hefur
hér verið á það bent, að til eru réttindi, sem við höfum
að þjóðarétti skuldbundið okkur til að tryggja mönnum
hér á landi, en þó eru hvergi nefnd i skráðum réttarregl
um. Þess eru jafnvel dæmi, að lög okkar séu i vafasömu
samræmi við þessar þjóðréttarlegu skuldbindingar. Við
!) Hið enska heiti er: „Declaration on the Granting of
Independence to Colonial Countries and Peoples“.
2) Hið enska heiti er: „Declaration on the Elimination of
All Forms of Racial Discrimination".
3) Hið enska heiti er: „International Convention on the
Elimination of All Forms of Racial Discrimination“.
Tímarit lögfræðinga
119