Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Page 43
Þorsteinn A. Jónsson
er skrifstofustjóri í
cLómsmálaráðuneytinu
Þorsteinn A. Jónsson:
ÁHRIF ALÞJÓÐLEGRA SIÐAREGLNA Á
ÍSLENSKA RÉTTARVÖRSLU
Dagana 6.-9. júní 1994, var haldin í Kaupmannahöfn 11. norrœna sakfrœði-
ráðstefnan. Meðal aðalfyrirlesara þar var William Rentzmann, erflutti erindi
sem bar yfirskriftina: „Internationale etiske krav til strajfeprocessuelle og
strafferetlige indgreb“. Fyrirlestur hans er birtur á bls. 211-229 í Nordisk
Tidsskrif for Kriminalvidenskab, 2. hefti 1994. Greinarhöfundur var annar af
tveimur fyrirlesurum um sama efii.
Á aðaljundi Sýslumannafélags íslands 20. október 1994 futti greinarhöf-
undur erindi sem nefndist „Áhrif alþjóðlegra siðareglna á íslenska réttar-
vörslu
Grein þessi byggist á þessum tveimur fyrirlestrum og framangreindum fyrir-
lestri Williams Rentzmanns.
Á sakfrœðiráðstefnunni flutti og Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari erindi,
sem nefiiist „De internationale menneskerettigheders krav til bevisf0relse“,
og birtist það í framangreindu hefii Nordisk Tidsskrifi for Kriminalvidenskab
bls. 197-210.
1. UM ALÞJÓÐLEGAR SIÐAKRÖFUR
Að gera grein fyrir siðakröfum krefst venjulega heimspekilegrar takmörk-
unar á því hvert sé innihald þessara krafna og ekki síst þess að gerð sé grein
fyrir mismuninum á siðamati (moral) og siðfræði (etik). Þar sem ég hef ekki
þekkingu til að taka þátt í þeirri umræðu, verður hún látin liggja á milli hluta
hér.
191