Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Side 58
A VIÐ OG DREIF
AÐALFUNDUR LÖGMANNAFÉLAGS ÍSLANDS 18. MARS 1994
Aðalfundur Lögmannafélags íslands var haldinn föstudaginn 18. mars 1994
í Arsal á Hótel Sögu. I upphafí fundarins minntist Ragnar Aðalsteinsson hrl.
formaður L.M.F.Í., þriggja félagsmanna, sem látist höfðu á starfsárinu, þeirra
Guðmundar Vignis Jósefssonar hrl., Péturs Þorsteinssonar hrl. og Sveins
Finnssonar hdl.
Formaðurinn flutti skýrslu stjórnar L.M.F.Í. til fundarins. Hann greindi frá
því að sú nýbreytni hefði verið tekin upp að leggja fyrir aðalfund félagsins
skriflega skýrslu stjómar og hefði hún verið send út til félagsmanna fyrir
fundinn. Félagsmenn gætu með þessu móti fyigst nánar með starfsemi féiags-
ins og kæmu betur undirbúnir á fundinn. Þannig gætu þeir betur rætt athafnir
stjórnarinnar eða athafnaleysi og gagnrýnt stjómina, ef þeir teldu þörf á. Þá
greindi formaðurinn frá því að sú nýbreytni hefði verið tekin upp að leggja
fram fjárhagsáætlun fyrir byrjað starfsár. Þetta auðveldaði félagsmönnum að
fylgjast með fjármálum félagsins og þróun mála og veitti jafnframt stjóminni
meira aðhald en annars. Þessar nýjungar gerðu félagsstarfsemina opnari og
ykju samband stjómarinnar og félagsmanna.
Næst vék formaðurinn tali sínu að fræðslustarfsemi félagsins og gerði grein
fyrir störfum fræðslunefndarinnar og þeim námskeiðum sem hún hefði staðið
fyrir. Þátttakendur á námskeiðunum hefðu til þessa verið samtals 232. í undir-
búningi væri gerð langtímaáætlunar á sviði fræðslumála og jafnframt væri
hugmyndin sú að flytja fræðslustarfsemi félagsins í húsnæði þess að Álftamýri
9. Formaðurinn nefndi einnig að stjómin hefði unnið að undirbúningi nám-
skeiðs um siðareglur L.M.F.Í. og námskeiðs um Mannréttindasamning Sam-
einuðu þjóðanna, einkum um borgaraleg og stjómmálaleg réttindi, kæruleiðir,
málsmeðferð og dómaiðkun.
Formaðurinn nefndi einnig aðra þætti í starfsemi félagsins, sem fella mætti
undir fræðslustarfsemi, þ.e. starfsemi námssjóðs, rekstur bókasafns, félags-
fundi og málþing og útgáfustarfsemi ýmis konar, þar á meðal á hæstaréttar-
dómum. Formaðurinn gerði einnig grein fyrir störfum annarra fastra nefnda
félagsins, þ.e. kjaranefndar, laganefndar, gjaldskrámefndar og skemmti-
nefndar. Ennfremur greindi hann frá því að ýmsar nefndir hefðu starfað um
skemmri tíma, svo sem merkisnefnd og nefnd, sem fór yfir og gerði athuga-
semdir við frumvarp til laga um breytingar á málflytjendalögunum. Þakkaði
206