Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Síða 13

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Síða 13
verður að gæta þess að virða rétt sérhvers sem afplánað hefur refsingu til að vera álitinn heiðvirður eða saklaus. Hinn almenni og yfirlýsti tilgangur refsinga er að vama lögbrotum og því marki verður ekki náð með því að ákvarða hegningu sem flestir myndu kjósa sér. Ótti við refsingar er ekki eina ástæðan fyrir löghlýðni, en svo virðist sem menn sneiði stundum hjá lögbrotum af ótta við refsinguna sem kann að fylgja á eftir. Af þessu má þó ekki ætla, að í hvert sinn sem refsing er tekin út þyki viðkomandi afplánun hennar miður. Þannig er það lrka refsing t.d. að greiða sekt þó svo að við gerum það fúslega, því við kunnum að telja sektina réttláta. Þetta er mikilvægt atriði því sérhver sem brotið hefur lög á rétt til refsingar. Þrátt fyrir að okkur sé ekki tamt að skoða málið frá þeirri hlið þá er afplánun refsingar hvers þess sem til sektar ftnnur nauðsynleg til þess að viðkomandi geti hlotið uppreisn æru sinnar. Sérhverri siðferðisveru er það nauðsyn. Við gerum almennt þann greinarmun í tali um refsingar að skilja á milli refsinga sem löggjafi leggur á herðar afbrotamönnum annars vegar og þeirra er foreldrar leggja t.d. bömum sínum á herðar hins vegar. Síðamefnda atriðið er í raun ekki annað en ráðning og á raunar lítið skylt við refsingar í þeim skilningi sem hér er til umfjöllunar. En ég nefni þennan greinarmun vegna þess að slíkar refsingar em mótandi fyrir hugmyndir flestra manna og skilning á refsingum sem stofnun í samfélaginu. Ofangreind upptalning þjónar ekki öðmm tilgangi en þeim að afmarka lítillega hvað við er átt þegar við tölum um refsingar og minnir á einstaka þætti sem hafa verður í huga þegar tekist er á við þau rök sem fyrirferðarmest eru þegar leitað er réttlætingar fyrir refsingum. Snúum okkur nú að þeim. III. í meginatriðum má segja að menn skipi sér í tvo hópa eftir afstöðu sinni til refsinga. Annars vegar em svonefndir gjaldstefnumenn, hins vegar nytjastefnu- menn. Eitt helsta einkenni gjaldstefnunnar er sú áhersla er hún leggur á sekt og málagjöld og eðli sínu samkvæmt þá lítur hún aftur til afbrotsins sem framið var, refsingunni til réttlætingar og afneitar því að afleiðingar hennar, gagnlegar eða aðrar, hafi nokkur tengsl við réttlætingu til að bera. Nytjastefnan krefst þess hins vegar að refsing geti aðeins verið réttlætt fyrir tilstilli þess er afleiðingar hennar hafa í för með sér og þá einkum þess góða, sem um leið vegur upp á móti því illa sem felst í því að leggja þjáningu á herðar mönnum. Annars vegar er því gjaldstefnan sem lítur til fortíðarinnar og leitar rétt- lætingar með tilvísun til verknaðarins sem framinn var, hins vegar er nytja- stefnan er lítur til framtíðarinnar og réttlætir sín viðhorf með tilvísun til afleið- ingarinnar er refsingin leiðir af sér. Gjaldstefnan lítur svo á að sérhvert samfélag byggi á grundvallarreglum sem settar séu í þeim tilgangi að viðhalda sáttmála einhverrar gerðar, manna í millum, sem hefur það að meginmarkmiði að varðveita gagnkvæman rétt og 7
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.