Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Qupperneq 24

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Qupperneq 24
Við beitingu heimildarinnar í 57. gr. a almennra hegningarlaga verður dóm- arinn að varast þrennt. í fyrsta lagi má óskilorðsbundinn hluti refsivistardóms ekki fara fram úr þremur mánuðum.4 í öðru lagi verður ekki beitt saman skilorðsbundnu varðhaldi og óskilorðsbundnu fangelsi. Loks verður fésekt því aðeins dæmd með refsivist, að refsivistin, hvort sem um er að ræða varðhald eða fangelsi, verði skilorðsbundin í heild sinni. Heimild til að dæma fésekt samhliða skilorðsbundinni refsivist er hins vegar óháð því hvort fésekt liggi við broti sem dæmt er út af, sbr. 2. mgr. hins tilvitnaða ákvæðis. Astæður skilorðsákvörðunar geta verið margar og er mat þar um alfarið lagt í hendur dómstóla. Segja má að grundvöllur skilorðsbindingar sé helst til staðar þegar brotamaður er ungur að árum eða hefur ekki áður gerst sekur um refsilagabrot. Leiða þessar ástæður hvor um sig oftar til skilorðsdóms en aðrar einstakar ástæður skilorðsákvörðunar. Við mat á því hvað telst ungur aldur í þessu tilliti má hafa hliðsjón af 1. tölulið 1. mgr. 56. gr. almennra hegningar- laga, en samkvæmt því ákvæði er saksóknara ríkisins heimilt að beita ákæru- frestun út af brotum sem unglingar, eins og segir í ákvæðinu, á aldrinum 15 til 21 árs hafa framið.5 Því yngri sem brotamaður er því meiri eru líkurnar á því að refsing verði skilorðsbundin og þá í heild sinni. Mjög ungur aldur brotamanns hefur þá sérstöðu sem ástæða skilorðsákvörðunar, að hann leiðir öðrum skilorðsástæðum fremur til þess að skilorðsbindingu sé beitt að fullu þegar um alvarlegri sakarefni er að ræða.6 Að því er sakarferil varðar er skilorðsbinding refsingar auðvitað ekki bundin við það að brotamaður hafi ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Þannig er ekki óalgengt að skilorðsbinding styðjist við þá staðreynd, að brotamaður hafí ekki áður gerst sekur um brot á almennum hegningarlögum7 eða þá að hann hafi ekki áður unnið til refsivistar.8 Þá má einnig finna dæmi þess, að um rök fyrir skilorðsbindingu refsivistar sé vísað til þess, að brotamaður, sem þegar hefur hlotið refsivistardóm, hafí ekki áður gerst sekur um samskonar brot og dæmt er um með seinni refsivistardómi, til að mynda auðgunarbrot.9 Má þá segja að komið sé að endimörkum hins mögulega en þó ber þess að gæta, að við skilorðsástæðu af þessu tagi yrði að líkindum aðeins stuðst í dómi sem fyllingarástæðu, það er samhliða öðrum skilorðs- ástæðum. Sérstakt tilvik er að finna í H 1990 632, en þar er skilorðsbinding meðal annars grundvölluð á því, að refsingu ákærða hefði mátt ákveða með hliðsjón af 1. mgr. 256. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ef hann hefði ekki áður sætt refsingu fyrir auðgunarbrot, svo vitnað sé beint í dóminn. 4 Sjá í þessu sambandi H 1993 1809. 5 í H 1986 448 sýnist skilorðsbinding meðal annars hafa grundvallast á aldri ákærðu K, en hún var 21 árs er hún framdi brot þau sem um var dæmt í málinu. 6 Vísa má um þetta til H 1987 700 og H 1992 605, en að þessum dómum hefur þegar verið vikið stuttlega. 7 Sjá t.d. H 1989 319 og H 1990 224. 8 Sjá t.d. H 1988 1500, H 1990 251 og H 1993 789. 9 Sjá H 1993 248. 18
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.