Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Síða 25

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Síða 25
Áherslan hér lýtur að umfangi brotsins, en fjölmörg dæmi eru um skilorðs- bindingu þegar sakbomingur telst hafa unnið til refsivistar en brot þykir smá- vægilegt. Ohæfilegur dráttur á meðferð máls sem sakbomingi verður ekki um kennt hefur í seinni tíð orðið tilefni skilorðsbindingar og má þar nefna H 1990 636, H 1993 147, Hrd. frá 23. febrúar 1995 í málinu nr. 462/1994 og Hrd. frá 30. nóvember 1995 í málinu nr. 263/1995.10 Sem dæmi um aðrar ástæður skilorðsbindingar samkvæmt dómaframkvæmd má nefna ýmsar aðstæður brota- manns svo sem skerta heilsu, örorku og takmarkaðan andlegan þroska hans,* 11 svo og röskun sem orðið hefur á stöðu hans og högum og rakin verður til brots.12 Undir þetta kann að falla, að brotamaður hafi sjálfur orðið fyrir heilsutjóni er hann framdi hinn refsiverða verknað sinn. Hár aldur sakbomings getur einnig orðið til þess, að dómur sé skilorðsbundinn. Þá hefur jákvæð breytni brotamanns eftir framningu brots oft stuðlað að skilorðsbindingu. Má í því sambandi nefna greiðslu fébóta til þess eða þeirra sem brot hefur beinst gegn,13 svo og að ákærði hafi ekki síðan gerst sekur um refsivert lögbrot.14 Að því er varðar greiðslu fébóta má finna dæmi þess að greiðsla þeirra eftir uppkvaðningu héraðsdóms en skömmu fyrir dómtöku málsins í Hæstarétti hafi ásamt aðstæðum brotmanns leitt til skilorðsbindingar á tildæmdri refsivist, sbr. H 1993 301. Loks má nefna, að mild afstaða brotaþola til þess er brot framdi, sem til að mynda lýsir sér í því að brotaþoli gerir hvorki refsi- né bótakröfu á hendur brotamanni, kann ásamt öðram ástæðum að leiða til þess að skilorðsbindingu verði beitt. Ekki verður skilið við umfjöllun um skilorðsdóma án þess að vikið sé að 60. gr. almennra hegningarlaga. Samkvæmt því ákvæði skal, þegar rannsókn er hafin út af nýju broti áður en skilorðstíma lýkur, taka bæði málin til meðferðar og dæma þau í einu lagi, og á það við hvort sem um skilorðsrof er að ræða eða 10 í H 1990 636 er skilorðsbinding grundvölluð á drætti sem varð á rekstri máls fyrir dómi fram að útgáfu ákæru. Um rök fyrir skilorðsbindingu í H 1993 147 og hæstaréttardómi frá 23. febrúar 1995 er vísað til óhæfilegs dráttar sem varð á rekstri þessara mála hjá embætti ríkissaksóknara og í báðum dómunum er skírskotað í því sambandi til 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. nú lög nr. 62/1994. f tengslum við umfjöllun um þá ástæðu skilorðsbindingar sem hér um ræðir má nefna H 1987 1434, H 1988 1500 og H 1989 966. 11 Sjá H 1989 181 ogH 1992 222. 12 Sjá H 1991 1776 og H 1992 363. 13 Sjá H 1987 1434, H 1989 628, H 1991 802, H 1993 192 og hæstaréttardóm frá 9. nóvember 1995 í málinu nr. 257/1995. 14 Sjá H 1987 1434, H 1988 1202, H 1989 319 og H 1989 966. Að því er varðar aðra jákvæða framgöngu sakbornings eftir framningu brots og skilorðsbindingu refsivistar á þeim grunni má nefna H 1987 1434 (ákærði játaði greiðlega brot sín), H 1988 207 (ákærði leitaði sér lækninga við drykkjusýki, var í vinnu og hafði ekki fallið til fyrra horfs), H 1988 1202 (ákærði játaði brot sín greiðlega og skilaði því sem hann tók án eftirgangsmuna), H 1989 343 og H 1989 352 (ákærði skýrði greiðlega frá málsatvikum) og H 1993 192 (ákærði gaf sig af sjálfsdáðum fram við yfirvöld og viðurkenndi brot sín og upplýsti þau). 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.